Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs, Hreiðars Más og Sigurðar um upptöku Al Thani-málsins

olafur_13.jpg
Auglýsing

End­ur­upp­töku­nefnd hefur hafnað beiðnum Ólafs Ólafs­son­ar, Hreið­ars Más Sig­urðs­sonar og Sig­urðar Ein­ars­sonar um end­ur­upp­töku Al Thani máls­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Ólafi Ólafs­syni. Úrskurð­irnir hafa ekki verið gerðir opin­ber­ir. 

Sig­urður Ein­ars­son er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings og Ólafur Ólafs­son átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans. Þeir voru allir dæmdir sekir í Al-T­hani mál­inu í Hæsta­rétti fyrir tæpu ári síð­an. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, og Ólafur fjögur og hálft ár. Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, var líka dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í mál­in­u. 

Í til­kynn­ingu frá KOM almanna­tengsl­um, fyrir hönd Ólafs Ólafs­son­ar, kemur fram að það séu Ólafi og fjöl­skyldu hans „veru­leg von­brigði“ að beiðn­inni hafi verið hafn­að. Færð hefðu verið ítar­leg rök fyrir því að veru­legar líkur væru á að sönn­un­ar­gögn hefðu verið rangt met­in. 

Auglýsing

Rök­stuðn­ingur end­ur­upp­töku­nefndar hafi verið ófull­nægj­andi að hans mati. Haft er eftir Þórólfi Jóns­syni, lög­manni Ólafs, að það hefði átt að fall­ast á beiðn­ina við þær aðstæður sem uppi hafi ver­ið. „Slíkur vafi er uppi um að sím­tal sem sak­fell­ing byggð­ist að stórum hluta á hafi verið rétt túlkað að nefndin hefði að mínu mati átt að fall­ast á að málið yrði tekið fyrir að nýju.“ Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreið­ars Más, segir í til­kynn­ing­unni að þetta valdi Hreið­ari von­brigðum og álykt­anir um hlut­deild Ólafs hafi skipt sköpum í mál­in­u. 

Deil­urnar um annan Óla

Helsta ástæðan fyrir beiðni Ólafs var sú að í dómi Hæsta­réttar voru sönn­un­ar­gögn í mál­inu rang­lega met­in, að mati Ólafs. Að hans mati var rangt mat lagt á sím­tal tveggja manna, þar sem ann­ars þeirra vísar til sam­tals við mann sem kall­aður var Óli. Þetta sagði Ólafur að væri metið í dómum sem um hann væri að ræða en það væri í raun verið að tala um Ólaf Arin­björn Sig­urðs­son lög­mann. „Ekk­ert annað í mál­inu sýnir fram á meinta vit­neskju Ólafs um þessi atriði. Þessi ranga for­senda er horn­steinn­inn að sak­fell­ingu Ólafs í dómi Hæsta­réttar sem telur að á grunni sím­tals­ins sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Ólafur Ólafs­son skyldi njóta arðs til jafns við Al Than­i,“ sagði í yfir­lýs­ing­u. 

Undir þetta tóku Hreiðar og Sig­urður en þeirra end­ur­upp­töku­beiðni Hreið­ars og Sig­urðar bygg­ist ann­ars vegar á því að Árni Kol­beins­son, einn dóm­enda máls­ins í Hæsta­rétti, hafi verið van­hæfur og hins vegar á því að sönn­un­ar­gögn hafi verið metin rang­t. 

Árni Kol­beins­son var skip­aður vara­dóm­ari í mál­inu að því er fram kemur þar. Mál­flytj­endum hafi verið til­kynnt í des­em­ber í fyrra að eig­in­kona hans, Sig­ríður Thor­laci­us, hafi setið í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram í jan­úar 2009. Fjár­mála­eft­ir­litið var með Al Than­i-­málið til rann­sóknar á þeim tíma. Þá var óskað eftir því að mál­flytj­endur gerðu athuga­semdir við setu Árna ef þeir hefðu þær, en svo var ekki gert.Nú segja Hreiðar og Sig­urður hins vegar að eftir að dómur var geng­inn í mal­inu hafi komið fram upp­lýs­ingar um að sonur Árna hefði starfað sem for­stöðu­maður lög­fræðis­viðs slita­stjórnar Kaup­þings frá 2008 og 2013. Þetta hafi verið nýjar upp­lýs­ingar sem ekki hafi verið upp­lýst um. Hags­munir slita­stjórnar Kaup­þings af sak­fell­ingu þeirra í mál­inu hafi verið aug­ljós­ir.

„Svo virð­ist sem sonur dóm­ar­ans hafi sinnt störfum fyrir slita­stjórn Kaup­þings þegar dóm­ar­inn tók sæti í mál­inu og dæmdi það. Lík­legt er að son­ur­inn hafi tekið þátt í ákvörð­unum um að stefna Hreið­ari Má og Ólafi til greiðslu skaða­bóta en sú ákvörðun hefur verið byggð á sömu atvikum og fjallað var um í hæsta­rétt­ar­mál­inu. Hafði hann, ásamt slita­stjórn Kaup­þings, því hags­muna að gæta af nið­ur­stöðu máls­ins. Kunna þeir hags­munir að vera fjár­hags­legir og umtals­verðir í ljósi ofan­greinds um mögu­legar kaupauka­greiðslur til hans,“ segir í end­ur­upp­töku­beiðn­inni. Þetta sé til þess fallið að vekja upp rétt­mætar efa­semdir um óhlut­drægni Árna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None