RÚV með 11 tilnefningar til Eddunnar - 365 sendi ekki inn tilnefningar

eddustoeffnota.jpg
Auglýsing

RÚV fær ell­efu til­nefn­ingar til­ Eddu­verð­laun­anna í ár, auk þess sem nokkrir þættir til við­bót­ar ­sem sýndir voru á RÚV en fram­leiddir af öðrum fá til­nefn­ing­u til verð­laun­anna. 365 miðlar til­nefndu hins vegar ekk­ert af sínu efni til­ verð­laun­anna, því eins og Kjarn­inn hefur greint frá sagð­i ­fyr­ir­tækið sig úr Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unn­i (ÍK­SA), sem heldur verð­laun­in. Engu að síður eru þættir sem ­sýndir voru á Stöð 2 til­nefndir til verð­laun­anna, en það eru þættir sem voru fram­leiddir af öðrum en 365. 

Sjón­varps­s­er­ían Rétt­ur, sem sýnd var á Stöð 2 en fram­leidd af Sagafilm, fær átta til­nefn­ingar til­ verð­laun­anna, flestar til­nefn­ingar allra sjón­varps­þátta. ­Sjón­varps­s­er­ían Ófærð er til­nefnd í fjórum flokk­um, en hún­ var fram­leidd af RVK Studios og er nú í sýn­ingu á RÚV. Báð­ar­ ser­í­urnar eru til­nefndar sem besta leikna sjón­varps­efn­ið, ásam­t Blóð­bergi, sem Vest­ur­port fram­leiddi og var sýnd á Stöð 2.

Þrír þættir á RÚV eru til­nefnd­ir ­sem frétta- eða við­tals­þættir árs­ins. Það eru Kast­ljós, Land­inn og Þú ert hér. Þátt­ur­inn Orka lands­ins á N4 er til­nefndur sem og þátta­röðin Við öll, sem aug­lýs­inga­stof­an PIP­AR/T­BWA gerði. Við öll fór í sýn­ingu á Face­book.

Auglýsing

Í flokknum lífstíls­þáttur árs­ins eru fimm þátt­araðir til­nefnd­ar, tvær voru sýndar á Stöð 2 en ­þrjár á RÚV. Það eru Hæpið og Ævar vís­inda­mað­ur, sem RÚV fram­leiddi einnig, og Ferð til fjár sem Sagafilm fram­leidd­i. Þátt­arað­irnar Atvinnu­menn­irnir okkar og Hið blóm­lega bú, sem ­sýndir voru á Stöð tvö en fram­leiddir af Stór­veld­inu ann­ar­s ­vegar og Búdrýg­indum hins veg­ar, eru einnig til­nefnd­ar.

Þættir sem sýndir voru á RÚV fá fjórar til­nefn­ingar í flokknum menn­ing­ar­þáttur árs­ins. Það eru Kilj­an, Með okkar aug­um, Topp­stöðin og Öldin henn­ar, en þrí­r ­síð­ast­nefndu þætt­irnir voru allir fram­leiddir af Sagafilm. Fimmti þátt­ur­inn sem er til­nefndur er Að sunn­an, sem var fram­leiddur af ­Sigva media og N4, þar sem þátt­ur­inn var sýnd­ur.

Fjórar af fimm til­nefn­ingum í flokknum skemmti­þáttur árs­ins voru einnig sýndar á RÚV, en sú fimmta, Hind­ur­vitni, var fram­leidd af Ísa­land Pict­ures og sýnd á Stöð 2. Aðrar til­nefn­ingar eru Árið er: Söngvakeppnin í 30 ár, Hrað­fréttir og Þetta er bara Spaug...­stofan sem RÚV fram­leidd­i, og Dreka­svæðið í fram­leiðslu Stór­veld­is­ins, sem var sýnt á RÚV.

Þá voru öll þrjú efnin sem eru til­nefnd í flokki barna- og ung­linga­efnis sýnd á RÚV. Það eru þætt­irnir Krakka­fréttir og Ævar vís­inda­mað­ur, auk þátt­ar­ins ­Klukkur um jól sem Hreyfi­mynda­smiðjan gerði.

365 hætti vegna ójafns atkvæða­væg­is 

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber að 365 hefði sagt úr aka­dem­í­unni. Jón Gnarr, fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs fyr­ir­tæk­is­ins, sagði þá að RÚV hefði haft 70% vægi í dóm­nefnd verð­laun­anna en 365 hafi borið helm­ing kostn­að­ar­ins. 

Þessu höfn­uðu for­svars­menn Edd­unn­ar, og sögðu full­yrð­ingar Jóns rangar og fjar­stæðu­kennd­ar. 

Á síð­ustu Eddu­verð­launa­há­tíð, sem fór fram í febr­úar 2015, fékk Stöð 2 engin verð­laun. Sjón­varps­þættir og –fólk RÚV sóp­uðu hins vegar til sín verð­laun­um. RÚV vann nán­ast alla flokka sem stöðin gat unn­ið. Ævar vís­inda­maður vann sem besta barna- og ung­linga­efni árs­ins, Land­inn sem frétta- eða við­tals­þáttur árs­ins, Hraunið sem leikið sjón­varps­efni árs­ins, Hæpið sem lífstíls­þáttur árs­ins, Vest­ur­farar sem menn­ing­ar­þáttur árs­ins, Orð­bragð sem skemmti­þáttur árs­ins og Brynja Þor­geirs­dóttir frá RÚV var valin sjón­varps­maður árs­ins. Þá fékk Ómar Ragn­ars­son, sem und­an­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heið­ursverð­laun Edd­unnar árið 2015.

Hrútar með 13 til­nefn­ingar

Kvik­myndir Hrútar er með 13 til­nefn­ing­ar, kvik­myndir Fúsi með tólf til­nefn­ingar og Þrestir ell­efu til­nefn­ing­ar. Allar eru til­nefndar sem besta kvik­mynd­in. Til­nefn­ing­arnar má lesa allar á vef­síðu Edd­unn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None