Vigfús Bjarni íhugar forsetaframboð eftir fjölmenna áskorun

Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur íhugar nú hvort hann muni bjóða sig fram til forseta Íslands í næstu forsetakosningum. Fjöldi manns hefur skorað á hann. „Kom mjög á óvart," segir hann.

Vigfús Bjarni Albertsson
Vigfús Bjarni Albertsson
Auglýsing

Hópur fólks hefur safnað miklum fjölda und­ir­skrifta til að skora á Vig­fús Bjarna Alberts­son, sjúkra­hús­prest á Land­spít­al­an­um, til að bjóða sig fram sem næsta for­seta Íslands. Vig­fús Bjarni stað­festir þetta í sam­tali við Kjarn­ann. Hann hefur ekki tekið ákvörð­un, en er að íhuga málið alvar­lega. 

„Það er tölu­vert stór hópur búinn að vinna að þessu í ein­hvern tíma og ég stopp­aði það ferli ekki þegar ég heyrði af þessu. En ég hef ekki tekið ákvörð­un,” segir hann. „Ég er mjög þakk­lát­ur, þetta er vissu­lega mjög óvænt staða til að vera í. Mér hefur dottið ýmis­legt í hug í líf­inu, en þetta var svo sann­ar­lega ekki eitt af því.” 

Vig­fús Bjarni seg­ist alltaf hafa viljað gera gagn og þykir vænt um að fólk sýni honum þetta traust. Þetta sé vissu­lega verð­ugt verk­efni til að gera eitt­hvað gott. Hann seg­ist munu skoða málið mjög alvar­lega þegar þar að kem­ur. Það velti alls ekki á hvaða aðrir fram­bjóð­endur stigi fram á sjón­ar­svið­ið. 

Auglýsing

„Ef af verð­ur, mun fram­boð mitt ekki verða póli­tískt, heldur þvert á allar slíkar stærð­ir,” segir hann. 

Til stendur að birta áskor­un­ina á næst­unni og sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er um að ræða mörg hund­ruð und­ir­skriftir sem nú þegar hafa safn­ast. Vig­fús Bjarni hefur ekki séð list­ann og veit ekki hversu margar und­ir­skriftir er um að ræða. 

„En ég ætla að skoða þetta alvar­lega og eiga sam­tal við þennan hóp sem stendur fyrir þessu,” segir hann. 



Vig­fús Bjarni tók þátt í umræð­unni um sam­visku­frelsi presta, frelsi þeirra til að neita að gefa saman sam­kyn­hneigð pör, sem stóð hátt síð­ast­liðið haust. Vig­fús Bjarni sagð­ist þá ætla að berj­ast fyrir því „sem prest­ur, kirkju­þings­mað­ur, stjórn­ar­maður í Presta­fé­lagi Íslands, sem mann­eskja, að þetta hug­tak fái ekki stað­ist í þessu sam­hengi. Enn og aftur ætlar fámennur hópur að ógna sam­fylgd þjóðar og kirkju. Nei takk.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None