InDefence skorar á Seðlabankann að birta yfirlit yfir undanþágur slitabúa

Már Guðmundsson
Auglýsing

InDefence-hóp­ur­inn hefur sent áskorun til Seðla­banka Íslands um að birta yfir­lit yfir und­an­þágur föllnu bank­anna og stöð­ug­leika­mat á nauða­samn­ingum þeirra. Áskor­unin kemur í kjöl­far þess að Seðla­bank­inn lýsti því yfir í gær að hann hefði veitt síð­ustu und­an­þág­una frá fjár­magns­höftum vegna upp­gjörs fall­inna við­skipta­banka og spari­sjóða á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða. 

InDefence segir í yfir­lýs­ingu að það sé veru­leg hætt á að nauða­samn­ing­ar föllnu bank­anna geti haft skað­leg áhrif á fram­gang ­á­ætl­unar um afnám hafta og almenn lífs­kjör á Íslandi. Af þessum ástæðum breytti Alþingi lög­um þannig að dóm­ari mætti ekki stað­festa frum­varp að nauða­samn­ingi fjár­mála­fyr­ir­tækis nema að mat ­Seðla­banka Íslands hafi sýnt að við­kom­andi samn­ingur raski ekki efna­hags­legum stöð­ug­leika á Ís­land­i. Í sam­ræmi við lof­orð stjórn­valda um gagn­sæi við losun fjár­magns­hafta óskar InDefence hóp­ur­inn eftir því að Seðla­banki Íslands birti stöð­ug­leika­mat fyrir sér­hvert slitabú fjár­mála­fyr­ir­tækis sem lag­t hefur fram nauða­samn­inga."

InDefence óskar einnig eftir því að Seðla­bank­inn geri grein fyrir öllum und­an­þágum frá gjald­eyr­is­höftum sem veittar hafa verið og yfir­liti um upp­hæðir og við­tak­endur á erlendum gjald­eyri og erlendum eignum sem und­an­þegnar hafa verið höft­u­m. 

Auglýsing

InDefence segir að þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit hafi upp­lýs­inga­streymi frá stjórn­völdum um áætlun um afnám fjár­magns­hafta verið tak­markað og á köflum mis­vísandi. Leynd­ar­hyggja elur á tor­tryggni. Þar sem ­stjórn­völd hafa vænt­an­lega ekk­ert að fela og allar upp­lýs­ingar liggja fyr­ir, hvetjum við Seðla­banka Ís­lands til veita þær strax."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None