Þorgerður Katrín íhugar forsetaframboð

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir íhugar að bjóða sig fram til forseta Íslands. Fjórir forsetaframbjóðendur eru byrjaðir að safna undirskriftum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­stöðu­maður mennta- og nýsköp­un­ar­sviðs Sam­taka atvinnu­lífs­ins, íhugar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Þor­gerður stað­festir þetta í sam­tali við Kjarn­ann, en Frétta­tím­inn greindi frá mál­inu í dag. 

Þor­gerður Katrín er fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún sat á Alþingi fyrir flokk­inn á árunum 1999 til 2013.  

Þor­grímur og Sturla óákveðnir

Fjórir for­seta­fram­bjóð­endur eru byrj­aðir að safna und­ir­skrift­um. Nauð­syn­legt er að skila inn 1.500 nöfnum sam­tals úr öllum lands­fjórð­ungum um miðjan maí til að geta boðið sig fram. 

Auglýsing

Ari Jós­eps­son segir und­ir­skrifta­söfn­un­ina ganga vel. Það sama segir Elísa­bet Kristín Jök­uls­dótt­ir. Þau Ást­þór Magn­ús­son og Hildur Þórð­ar­dóttir segj­ast bæði vera rétt að byrja í sinni söfnun og und­ir­strika að nægur tími sé til stefnu. Bæði eru þau byrjuð í sinni kosn­inga­bar­átt­u. 

Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur und­ir­strikar að hann sé enn að ákveða hvort hann muni bjóða sig fram eða ekki. Hann sé enn að meta kosti og galla og hefur ekki hafið und­ir­skrift­ar­söfn­un. 

Sturla Jóns­son bíl­stjóri tekur í sama streng og Þor­grímur og seg­ist enn vera að hugsa mál­ið. 

Mörg nöfn í umræð­unni

Fleiri hafa verið orð­aðir við fram­boð. Stefán Jón Haf­stein hélt opinn fund á Kaffi Sólon í síð­ustu viku þar sem for­seta­hlut­verkið var rætt. Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin til stuðn­ings Vig­fúsi Bjarna Alberts­syni sjúkra­hús­presti til að bjóða sig fram og Gallup­könnun var gerð í síð­ustu viku til að kanna grund­völl fyrir fram­boði Höllu Tóm­as­dóttur athafna­konu. Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Voda­fone og ráð­gjafi í stjórn­ar­ráð­inu, er enn að melta hvort hann fari fram, Andri Snær Magna­son rit­höf­undur er enn að velta málum fyrir sér, Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, hefur ekki neitað því að hún ætli í fram­boð og Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar, hefur verið þög­ull sem gröfin

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None