Grikkir kalla sendiherra til baka frá Austurríki vegna flóttamannamála

Flóttamenn í Grikklandi. Grikkir hafa tekið við gríðarlegum fjölda flóttamanna.
Flóttamenn í Grikklandi. Grikkir hafa tekið við gríðarlegum fjölda flóttamanna.
Auglýsing

Grikkir hafa kallað nú sendi­herra sinn til baka frá Aust­ur­ríki, sem er nýjasta vend­ingin í flótta­manna­deilum ESB. Ástæðan er sú að Aust­ur­rík­is­menn héldu fund ásamt ríkjum Balkanskaga um það hvernig taka beri á flótta­manna­vand­anum í Evr­ópu. Grikkj­um, sem taka á móti mjög stórum hluta flótta­mann­anna, var ekki boðið á fund­inn. 

Þetta þykir Grikkjum óvina­legt og því hefur sendi­herr­ann verið kall­aður heim til ráð­gjaf­ar. Í til­kynn­ingu frá gríska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að þetta sé gert til að við­halda vin­gjarn­legum sam­skiptum ríkj­anna og þjóð­anna tveggja. Ekki sé hægt að fást við vanda­málin innan Evr­ópu­sam­bands­ins með hugs­ana­hætti og aðferðum sem eigi rætur sínar að rekja til nítj­ándu ald­ar­inn­ar. 

Tíu Balkan­ríki voru á fund­inum í Aust­ur­ríki og komu sér þar saman um aðgerðir til að reyna að hefta komu flótta­manna. Aust­ur­ríki, Serbía og Makedónía hafa nú þegar gripið til slíkra aðgerða, sem hefur reitt Grikki til reiði. Þeir hafa varað við því að það gangi ekki að leggja byrð­arnar á eitt ríki, þannig leys­ist málið ekki. 

Auglýsing

Ráð­herrar frá Evr­ópu­sam­bands­ríkjum og ríkjum Balkanskag­ans funda nú í Brus­sel til að reyna að sætta ólík sjón­ar­mið í mál­inu. Til­lögur Balkan­ríkj­anna og Aust­ur­ríkis verða kynntar á fund­in­um, en meðal þess sem ríkin vilja er að taka fingraför af öllum sem koma til land­anna og snúa við öllum þeim sem ekki hafa vega­bréf eða eru með fölsk skil­ríki. Þá vilja þau aðeins taka við flótta­mönnum sem þeir meta í mik­illi þörf fyrir vernd, sem sum stjórn­völd vilja meina að þýði að aðeins verði tekið við Írökum og Sýr­lend­ing­um. Makedónar snéru afönsku flótta­fólki í hund­raða­tali við á landa­mærum Grikk­lands um helg­ina. 

Gríski ráð­herr­ann Yannis Mouzalas sagði við blaða­menn í Brus­sel að Grikk­landi myndi ekki sætta sig við að verða „Lí­banon Evr­ópu“, ein­hvers konar geymslu­staður fyrir fólk. Milljón sýr­lenskir flótta­menn eru í Líbanon. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None