Blaðamannafélag Íslands hefur kynnt tólf tilnefningar til blaðamannaverðlaunanna 2015, sem afhent verða 5. mars næstkomandi. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum, fyrir viðtal ársins, umfjöllun ársins, rannsóknarblaðamennsku ársins og loks eru veitt blaðamannaverðlaun ársins.
Blaðamennska Kjarnans er tilnefnd í einum flokki að þessu sinni. Magnús Halldórsson, blaðamaður, er tilnefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins, vegna umfjöllunar um sölu Landsbankans á eignarhlutum í Borgun.
Tilnefningarnar eru eftirfarandi.
Viðtal ársins 2015
Helgi Bjarnason, Morgunblaðinu. Fyrir viðtal við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrrasumar. Þresti Leó tókst fyrir snarræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björgunartæki brugðust gersamlega og fær Helgi einstæðar lýsingar Þrastar Leó á hugarástandi þremenninganna á meðan þeir biðu björgunar.
Reynir Traustason, Stundinni. Fyrir viðtal við Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðing sem sökuð var um manndráp af gáleysi. Reynir gerir lífshlaupi Ástu Kristínar góð skil og fær viðmælanda til að tala mjög opinskátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að viðhalda lífsviljanum.
Snærós Sindradóttir, Fréttablaðinu. Fyrir viðtal við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífsreynslu. Einar segir á einlægan hátt frá örlagadeginum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slasaður frá hildarleiknum. Snærós segir áhrifamikla sögu manns og dregur fram mikla þrautseigju, góða mannkosti og kærleika.
Umfjöllun ársins 2015
Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, fréttastofu RÚV. Fyrir umfjöllun um flóttamannavandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónarhorni á björgunarstörf áhafnar Týs á Miðjarðarhafi og viðtölum við fórnarlömb á vergangi í Ungverjalandi og Líbanon fengu landsmenn mikilsverða innsýn inn í erfiða ferð flóttamanna í leit að öryggi.
Helgi Seljan, Kastljós RÚV. Fyrir umfjöllun um nauðganir, áreitni og ofbeldi gagnvart þroskahömluðum konum. Ljóstrað var upp um sinnuleysi yfirvalda sem héldu ekki hlífiskildi yfir konunum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og hunsuðu kvartanir. Af virðingu og með áhrifaríkum hætti var saga kvennanna sögð og sjónarmiði þeirra komið á framfæri.
Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðaráætlun stjórnvalda. Fréttaskýringaröð þeirra varpaði ljósi á vaxandi mansalsvanda hér á landi þar sem einstaklingar eru misnotaðir í kynferðislegum tilgangi, til nauðungarvinnu eða í glæpastarfsemi.
Blaðamannaverðlaun ársins 2015
Hörður Ægisson, DV. Fyrir skýra og greinagóða umfjöllun um slitabú föllnu bankana, vogunarsjóðina sem þá keyptu sem og útgöngusamninga þeirra við íslensk stjórnvöld. Hörður hefur upplýst stöðu mála af djúpri þekkingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóðarbúið.
Ingibjörg Kjartansdóttir, Stundinni. Fyrir fjölbreytta og mikilvæga umfjöllun um kynbundið ofbeldi. Í fjölmörgum greinum gaf Ingibjörg þolendum kynbundins ofbeldis og kynferðisbrota vettvang að tjá sig um sína upplifun af brotunum, upplýsti um hve víða í samfélaginu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórnarlömb að leita réttlætis vegna þeirra
Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðið/mbl.is. Fyrir áhrifamikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða til að kynna sér aðstæður þeirra flóttamanna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.
Rannsóknarblaðamennska ársins 2015
Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni. Fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um fjárhagsleg tengsl Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og eignarhaldsfélags hans OG Capital við fyrirtækið Orka Energy. Í ljós komu verulegir hagsmunaárekstrar vegna samstarfssamnings íslenskra og kínverskra stjórnvalda í orkumálum sem Orka Energy var aðili að og ráðherrann ritaði undir.
Kolbeinn Tumi Daðason 365 miðlum. Fyrir uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglumanna með störf lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild og alvarlegar ásakanir samstarfsfélaga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkniefnaheiminn. Upphaf umfjöllunarinnar var tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem fór út um þúfur.
Magnús Halldórsson Kjarnanum. Fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun í lokuðu söluferli og vísbendingar um að hlutur Landsbankans hafi verið seldur á undirverði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hagsmunum eigenda sem er almenningur í landinu.