Bjarni kynnir brátt nýja eigendastefnu um fjármálafyrirtæki

Fjármálaráðherra kynnir brátt drög að endurskoðaðri eigendastefnu ríkisins um fjármálafyrirtæki. Hann kynnti málið fyrir ríkisstjórninni í morgun. Stefnt er að því að herða á kröfum við sölu á eignum.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

End­ur­skoðuð eig­enda­stefna rík­is­ins um fjár­mála­fyr­ir­tæki verður að öllum lík­indum kynnt opin­ber­lega á næstu vik­um. Núver­andi eig­enda­stefna er frá árinu 2009 og kynnti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, drög að end­ur­skoð­aðri stefnu fyrir rík­is­stjórn í morg­un.

Herða á kröfum við sölu á eignum

Bjarni sendi bréf til Banka­sýslu rík­is­ins 11. febr­úar síð­ast­lið­inn, vegna sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borg­un, þar sem fram kom að gert sé ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem stefnan nær til. 

Ein ástæða end­ur­skoð­un­ar­innar er breytt umgjörð fjár­málaum­hverfi í land­inu og hinar miklu breyt­ingar á eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­stofn­un­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er til­greint í stefn­unni að munur geti verið á áherslum eftir eigna­hlut, það er að segja hvort ríkið eigi 98 pró­sent í banka, eða 13 pró­sent eins og í til­viki Arion banka. Ekki er búist við því að stefnan í heild verði end­ur­skoð­uð, enda margt þar sem enn eigi vel við.  Bjarni mun kynna end­ur­skoð­aða stefnu fyrir þing­inu en það liggur ekki enn fyrir með hvaða hætti; hvort það verði með skýrslu eða sér­stakri umræðu eða með öðrum hætti. Leitað verður almennra umsagna varð­andi breyt­ing­arn­ar.  

Auglýsing

Eig­enda­stefnan til­greind í nýjum lögum

Í nýjum lögum um opin­ber fjár­mál segir að í eig­enda­stefnu skuli gera grein fyrir mark­miðum rík­is­ins með eign­ar­hald­inu, ásamt þeim grunn­gildum sem skulu gilda um sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf milli eig­enda og félags. Þá sé heim­ilt fyrir ráð­herra að að setja sér­staka stefnu fyrir ein­stök félög eða starf­semi á afmörk­uðum svið­u­m. 

Í lög­unum segir einnig að ráð­herra eða rík­is­að­ili sem fari með fyr­ir­svar eign­ar­hluta rík­is­ins í félagi, skuli hafa eft­ir­lit með að eig­anda­stefnu sé fram­fylgt í starf­semi félaga í eigu rík­is­ins. Ef félag er í eigu fleiri aðila en rík­is­ins skulu þeir sem kjörnir eru í stjórn þess fyrir hönd rík­is­ins taka mið af þeim meg­in­sjón­ar­miðum sem fram koma í þeirri eig­anda­stefnu sem sett hefur verið fyrir við­kom­andi svið eða félag.

Þá segir einnig í lög­unum að ráð­herra til­nefni í stjórnir félaga sem ríkið á eign­ar­hlut í á grund­velli hæfni og mennt­unar eða reynslu. Ráð­herra setur reglur um almenn og hlut­læg skil­yrði fyrir vali til setu í slíkum stjórnum og birtir þær opin­ber­lega sem hluta af eig­anda­stefnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None