Havila tapaði 23 milljörðum í fyrra - Íslensku bankarnir búnir að færa niður lán

Havila
Auglýsing

Norska ­skipa­fé­lagið Havila Shipp­ing ASA tap­aði sam­tals rúm­lega 1,5 millj­arði norskra króna á árinu 2015, eða um 23 millj­arða íslenskra króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Havila sem birtur var í gær. Tapið er að stærstu leyti til kom­ið ­vegna þess að virði flota Havila, sem telur 28 skip, var fært niður um 21 millj­arð króna. Félagið samdi við helstu lána­drottna sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum sínum í lok síð­asta árs, en eig­endur skulda­bréfa sem Havila hefur gef­ið út, höfn­uðu þeim áformum í síð­asta mán­uði. Því hafa stjórn­endur og aðal­eig­end­ur Havila sest aftur að samn­ings­borð­inu með kröfu­höfum til að reyna að kom­ast að nýju sam­komu­lagi. Á meðan greiðir félagið ekk­ert af skuldum sínum og ljóst er að það rambar á barmi gjald­þrots. Norskir grein­endur telja að Havila eig­i ­laust fé til að reka sig fram á haust.

Á með­al­ ­kröfu­hafa Havila eru tveir íslenskir bankar, Íslands­banki og Arion banki. Íslands­banki tók þátt í sjö millj­arða króna sam­banka­láni til félags­ins sem veitt var í lok árs 2013. Í árs­reikn­ingi bank­ans fyrir árið 2015 kom fram að hann hefði hefði bókað virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til­ ­fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til íslenska félags­ins Fáfn­is Offs­hore. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­sent af útlána­safni bank­ans var til­ ­fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Alls voru útlán til við­skipta­vina 665,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­örðum króna. Ís­lands­banki vill ekki gefa upp­ hversu mikið bank­inn hefur fært umrædd lán nið­ur.

Arion ­banki lán­aði Havila 4,5 millj­arða króna í júlí 2014. Í árs­reikn­ingi bank­ans ­fyrir árið 2015 var fram­kvæmd veru­lega var­úð­ar­nið­ur­færsla til erlendra ­fyr­ir­tækja í þjón­ustu­sam­starf­semi tengdri olíu­leit í kjöl­far erf­ið­leika á þeim ­mark­aði, á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Um er að ræða lánið sem bank­inn veitti Havila. Ekki er til­greint sér­stak­lega í árs­reikn­ing­i ­Arion banka, sem birtur var í síð­ustu viku, um hversu mikið lán­ið til Havila var fært niður en þar kemur hins vegar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­arður króna á árinu. Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka sagð­i fram að nið­ur­færsl­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lán­um ­sem bank­inn yfir­tók frá AFL –spari­sjóði á árinu 2015.

Auglýsing

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð niður á öðrum árs­fjórð­ung­i ­síð­asta árs. Um þriggja millj­arða króna var­úð­ar­nið­ur­færsla var færð á efna­hags­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú nið­ur­færsla er því að mest­u ­leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn reiknar með miklum afföll­u­m ­vegna þess.

Svo­kall­aður „spot-­mark­að­ur­“ ­vegna þjón­ustu við olíu­leit í sjó, þar sem Havila starfar, hefur hrunið á und­an­förnum miss­erum sam­hliða lækk­andi heims­mark­aðs­verði á olíu. Það var 115 dalir í júlí 2014 en er nú 34 dal­ir. Til að olíu­leit í Norð­ur­sjó geti borg­að ­sig þarf heims­mark­aðs­verðið á olíu að vera að minnsta kosti 60 dalir á tunn­u, eða nán­ast tvö­falt það sem það er í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None