Þurfa að gera yfirtökutilboð upp á 65 milljarða króna

Yfirtökuskylda er fyrir hendi vegna viðskipta með 34,1 prósent hlut í HB Granda.

HB Grandi
Auglýsing

Guð­mundi Krist­jáns­syni, for­stjóra og aðal­eig­anda Brims, ber að gera yfir­tökutil­boð í alla hluti í HB Granda, vegna við­skipta hans með 34,1 pró­sent hlut í félag­in­u. 

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í gær, virkj­ast yfir­töku­skylda við kaupa á 30 pró­sent hlut í skráðu félagi, sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipt­i. 

Verðið sem greitt er fyrir hlut­ina, sem áður voru í eigu Krist­jáns Lofts­sonar og Hall­dórs Teits­son­ar, er um 16 pró­sent yfir núver­andi mark­aðsvirði, en við lokun mark­aða á mið­viku­dag, sem er var síð­asti við­skipta­dag­ur, var verð­mið­inn á HB Granda 54,7 millj­arðar króna. Sé mið tekið af verð­mið­anum í við­skiptum Guð­mund­ar, þá er hann um 65 millj­arðar króna. 

Auglýsing

­Ljóst er að því að umfang þess­ara við­skipta getur hlaupið á enn fleiri millj­örðum en 21,7 sem hann þarf að greiða fyrir hluti Krist­jáns og Hall­dórs Teits­son­ar. 

Guð­mundur von­ast sjálfur til þess, að núver­andi hlut­hafar verði áfram eig­endur HB Granda, en yfir­töku­skyld­an, og til­boð í alla aðra hluti, er því laga­leg skylda. 

Eigið fé HB Granda nam í lok árs í fyrra um 257 millj­ónum evra, eða sem nemur um 35 millj­örðum króna. 

Yfirtökuskyldan er skýr í lögum.

Efna­hagur Brims, þar sem Guð­mundur er aðal­eig­andi, en eignir þess nema yfir 50 millj­örðum króna og eigið féð yfir 20 millj­örð­um. Þá á Guð­mundur einnig um þriðj­ungs­hlut í Vinnslu­stöð­inni í Vesta­manna­eyj­u­m. 

Meðal stærstu eig­enda HB Granda í dag eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóð­ur­ versl­un­ar­manna með tæp­lega 13,7% hlut og Líf­eyr­is­sjóð­ur­ ­starfs­manna rík­is­ins með ríf­lega 11,7% hlut.

For­vitni­legt verður að sjá hvernig hlut­hafar félags­ins taka í yfir­tökutil­boð­ið, því Krist­ján Lofts­son mat það svo að til­boð Guð­mundar væri gott, því hefði hann ákveðið að taka til­boð­inu. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa hagn­ast vel á við­skiptum sínum með hluta­bréf í HB Granda og geta fengið umtals­verðan sölu­hagnað ef þeir taka til­boði í hlut­inn. 

Hins vegar er HB Grandi traust fyr­ir­tæki, sem hefur sterkan efna­hag og hefur auk þess langa og trausta rekstr­ar­sögu. Að því leyt­inu til eru skamm­tíma­sveiflur á verð­miða félags­ins ekki endi­lega aðal­at­riðið þegar kemur að sýn eig­enda félags­ins, heldur frekar að félagið hefur greitt eig­endur mik­inn arð árlega og er burð­ar­stólpi í íslenskum sjáv­ar­út­veg­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent