Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur, tilkynnti um framboð sitt til forseta Íslands á Hótel Borg í dag. Boðað hafði verið til fundar á Borginni í dag þar sem Vigfúsi var afhent áskorun um að bjóða sig fram til forseta og eftir að honum hafði afhentur undirskriftalisti með áskoruninni tilkynnti hann um framboð sitt, að því er fram kemur á vef Vísis.
Kjarninn hafði áður greint frá því að Vigfús Bjarni hefði fengið fjölmargar áskoranir um að bjóða sig fram, og að hann væri að hugsa sig um hvort hann ætlaði að bjóða sig fram.
Vigfús Bjarni bætist þannig í hóp frambjóðenda en forsetakosningar fara fram þann 25. júní næstkomandi. Á meðal þeirra sem hafa tilkynnt um framboð sitt eru Þorgrímur Þráinsson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Ástþór Magnússon, Heimir Örn Hólmarsson og Hildur Þórðardóttir.
Þá hafa fleiri verið nefndir sem líklegir frambjóðendur, þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, þingmaður og formaður Vinstri grænna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, og Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.