Ríflega helmingur hlynntur því að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi

barn
Auglýsing

Tæp­lega 52% eru hlynnt því að leyfa stað­göngu­mæðrun á Íslandi, en 23-24% eru mót­fallin því, sam­kvæmt nýrri könnun frá Mask­ínu. Karla eru hlynnt­ari stað­göngu­mæðrun en kon­ur, rúm­lega 56% karla eru hlynntir því en 47 til 48% kvenna. 

Stuðn­ingur við stað­göngu­mæðrun minnkar með hækk­andi aldri, 69% fólks undir 25 ára aldri er hlynnt stað­göngu­mæðrun en 39% þeirra sem eru 55 ára og eldri. Þá er fólk með háskóla­próf síður hlynnt því að leyfa stað­göngu­mæðrun en þeir sem hafa styttri skóla­göng­u. 

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri-grænna skera sig frá kjós­endum ann­arra flokka, þar sem um 41% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­in­arr eru hlynntir því að leyfa stað­göngu­mæðrun og 26% kjós­enda Vinstri-grænna. Hjá öðrum flokkum var hlut­fallið á bil­inu 54 til 58%, hæst hjá kjós­endur Bjartrar fram­tíð­ar. And­staðan við það að heim­ila stað­göngu­mæðrun er lang­mest hjá VG, 55,6% segj­ast and­víg. Minnst and­staða er hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins, 17%. 

Auglýsing

Í spurn­ing­unni var stað­göngu­mæðrun skil­greind þannig að stað­göngu­mæðrun í víðum skiln­ingi sé þegar kona (stað­göngu­móð­ir) gengur með barn fyrir par eða ein­stak­ling (verð­andi for­eldra eða for­eldri) og hefur fall­ist á fyrir með­göng­una að afhenda þeim barnið eftir fæð­ing­u. 

Nú liggur inni í þing­inu frum­varp um að heim­ila stað­göngu­mæðrun í vel­gjörð­ar­skyn­i. 

Þetta er miklu minni stuðn­ingur en mæld­ist þegar tvær kann­anir voru gerðar á stuðn­ingi við heim­ilun stað­göngu­mæðr­unar árið 2011, þegar umræða um málið var mik­il. Þá gerði MMR könnun þar sem 87% sögð­ust fylgj­andi því að leyfa stað­göngu­mæðrun en 13% voru and­víg því. Frétta­blaðið gerði einnig könnun sem sýndi tæp­lega 85% stuðn­ing við það að stað­göngu­mæðrun yrði heim­il­uð. 15,3% voru and­víg. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None