Lýsa yfir vantrausti á morgun og vilja kosningar strax

Stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram tillögu um þingrof, vantraust og kosningar á þingi á morgun eða hinn. Alþingi verður undirlagt af aflandsmálum á morgun. Sigmundur og Bjarni ætla báðir að mæta í óundirbúnar fyrirspurnir.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Stjórn­ar­and­staðan ætlar að leggja fram til­lögu um van­traust, þing­rof og kosn­ingar á Alþingi á morgun eða hinn. Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar funda í fyrra­mál­ið, en þing kemur saman klukkan 15 á morgun og hefst dag­skrá á óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­um. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra verða báðir til and­svara. 

Lítið annað er á dag­skrá þings­ins á morg­un, að und­ar­skildum þremur fyr­ir­spurn­um, sem snúa að barka­ígræðsl­um, met­an­fram­leiðslu og tak­mörk­unum á plast­um­búð­u­m. 

Alþingi und­ir­lagt á morgun

Við­búið er að stjórn­ar­and­staðan nýti sér dag­skrár­lið­inn fund­ar­stjórn for­seta til að ræða við for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra um aflands­fé­laga­málin eftir afhjúpun í Kast­ljós­þætti kvölds­ins sem unn­inn var í sam­starfi við Reykja­vik Media og alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna. Því má gera ráð fyrir að þing­fundur standi fram undir kvöld eða leng­ur. 

Auglýsing

Búið er að boða til mót­mæla á Aust­ur­velli klukkan 17 á morg­un. Mik­ill fjöldi hefur boðað komu sína. 

Kjarn­inn hefur reynt að ná tali af for­ystu og þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kvöld, án árang­ur­s. 

Sig­mundur á að stíga til hlið­ar 

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, væntir þess að til­laga um van­traust, þing­rof og kosn­ingar verði dreift til þing­manna á morg­un. 

„Ég held að eftir kvöld­ið, eftir það sem hefur komið fram um hvernig Sig­mundur afsal­aði sér sínum hlut í félag­inu degi áður en lög gengu í gildi, þar sem hann reyndi að hylma yfir sann­leik­ann í við­tal­inu sem var sýnt úr, þá hefði ég talið eðli­legt að hann stigi til hlið­ar,” segir hún. 

Til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar snýr að for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og þar með rík­is­stjórn­inni allri. Katrín segir að ekki megi gleyma því að tveir aðrir ráð­herrar hafi verið afhjúpað­ir, þó að þeirra mál séu umfangs­minni heldur en Sig­mund­ar. „Það er samt ljóst að þau héldu líka upp­lýs­ingum leynd­um.” 

Spurð hvort að mögu­leg afsögn Sig­mundar myndi hafa áhrif á til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar segir Katrín að þá þurfi að skoða stöð­una í því ljósi.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None