Páll Harðar: Ekki leiki nokkur vafi á viðhorfi atvinnulífsins til lögbrota

Forstjóri kauphallarinnar segir mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að skoða það í þaula hvers vegna hægt gengur að byggja upp traust.

kauphöll
Auglýsing

Almenn­ingi er ekki ljóst hvaða skoðun er ríkj­andi innan íslensks atvinnu­lífs á þeim vafasömu starfs­háttum sem við­geng­ust fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins. Þar með hlýtur „vafi að ríkja á því í huga fólks að atvinnu­lífið rýni mark­visst eigin starfs­hætt­i.“



Þetta segir Páll Harð­ar­son, for­stjóri Nas­daq kaup­hallar Íslands, í ítar­legri grein á vef Kjarn­ans í dag, þar sem hann fjallar um íslenskt atvinnu­líf, stöðu efna­hags­mála og ekki síst hvers vegna það gengur hægt að byggja upp traust á atvinnu­líf­inu hjá almenn­ing­i. 



Páll segir að færa megi fyrir því sterk rök að málsvarar við­skipta­lífs­ins eigi að láta sig umræðu um dóma vegna hrun­mála varða svo ekki leiki „nokkur vafi á við­horfi meg­in­þorra atvinnu­lífs­ins á við­skipta­háttum í aðdrag­anda hruns­ins,“ eins og orð­rétt segir í grein hans.

„Að mínu mati ber opin­ber umræða þess merki að almenn­ingi er ekki ljóst hvaða skoðun er ríkj­andi í atvinnu­líf­inu á þeim vafasömu starfs­háttum sem við­geng­ust fyrir hrun. Þar með hlýtur að ríkja vafi á því í huga fólks að atvinnu­lífið rýni mark­visst eigin starfs­hætti. Umræða um þá dóma sem fallið hafa í málum tengdum hrun­inu ein­kenn­ist af harðri gagn­rýni á ákæru­valdið og dóm­stóla af hálfu þeirra sem hafa verið sak­felld­ir. Fæst­ir, ef nokkrir, virð­ast telja sig hafa gert nokkuð rangt. Á meðan aðrir blanda sér ekki í umræð­una er hættan sú að litið verði á þessa sömu menn sem málsvara við­skipta­lífs­ins. Að mínu mati má færa sterk rök fyrir því að for­svars­menn í íslensku við­skipta­lífi eigi að láta sig þessa umræðu varða til þess að ekki leiki nokkur vafi á við­horfi meg­in­þorra atvinnu­lífs­ins á við­skipta­háttum í aðdrag­anda hruns­ins.  Alvar­leg lög­brot voru fram­in.  Afleitir við­skipta­hættir kost­uðu gríð­ar­lega fjár­muni og mikla þján­ingu. Stór­kost­leg mark­aðs­mis­notkun átti sér stað. Trú á mark­aðs­hag­kerfið og hið frjálsa fram­tak hefur beðið hnekki. Starfs­um­hverfi atvinnu­lífs­ins hefur laskast af þessum sök­um. Mikið er í húfi. Þörf er á skýrum skila­boð­um, segir Páll í grein sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None