Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mætir ekki á þingfund í dag eins og til stóð. Ástæðan er sú að hann missti af flugi í Bandaríkjunum, sem orsakaðist vegna seinkunar á innanlandsflugi hans, samkvæmt aðstoðarmanni Bjarna í samtali við mbl.is.
Til stóð að bæði Bjarni og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra áttu að vera til svara í óundirbúnum fyrirspurnum í dag.
Bjarni er væntanlegur til landsins á morgun.
Auglýsing