Þingmenn eru nú mættir í Alþingishúsið. Fullt er út úr dyrum í andyri Alþingis af fjölmiðlafólki, en þingmenn eru ekki að gefa viðtöl. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins neita öllum viðtölum og vísa í Guðlaug Þór Þórðarsson, sitjandi þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er erlendis og kemur til landsins á morgun. Hann vildi ekki tjá sig við mbl.is í dag um það hvort hann bæri traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem forsætisráðherra.
Auglýsing