Morgunblaðið og DV: Forsætisráðherra var leiddur í gildru

Leiðarar allra blaða landsins sem komu út í morgun fjölluðu um málefni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og þá stöðu sem er komin upp í íslenskum stjórnmálum. Tveir leiðarahöfundar segja að forsætisráðherra hafi verið leiddur í gildru af fréttamönnum.

DV Morgunblaðið
Auglýsing

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi verið leiddur í gildru af þeim frétta­mönnum sem stóðu að við­tali við hann ­sem nú er sýnt út um allan heim. Þar segir einnig að RÚV, sem sýndi sér­stak­an Kast­ljós-þátt í sam­starfi við fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media um málið á sunnu­dag, ,megi eiga það að stofn­unin hafi „ekki farið leynt með þá ætlun sína að kné­setja for­sæt­is­ráð­herr­ann með öllum til­tækum ráð­um.“ Í leið­ar­anum er sett fram frek­ari gagn­rýni á þá fjöl­miðla sem komu að birt­ingu á fréttum úr gögn­um ­sem lekið var frá Mossack Fon­seca & Co í Panama og sagt að að sú falska ­mynd sem dregin hafi verið upp af Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra í þeirri fram­setn­ingu. Það breyti þó ekki því að „hvorki ­for­sæt­is­ráð­herr­ann né for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa haldið vel á þessum ­málum og það skyggir á annað sem þeir hafa gert vel. Þeir skulda þjóð­inni ærlega og ein­arð­lega yfir­ferð ­yfir þetta mál, án und­an­bragða og afsak­ana. Þeir mega lít­inn tíma missa.“ ­Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru Davíð Odds­son og Har­aldur Johann­es­sen.

Fjallað er um  málið í leið­ara DV í dag, en á for­síðu þess  ­blaðs stendur stórum rauðum stöfum „Bú­ið“. Þar skrifar annar rit­stjóri ­blaðs­ins, Egg­ert Skúla­son, og segir Sig­mund Davíð ekki njóta lengur trausts. „Rík­is­stjórn­ Ís­lands er í önd­un­ar­vél.“ Egg­ert gagn­rýn­ir, líkt og Morg­un­blað­ið, þá sem tóku við­talið við for­sæt­is­ráð­hera og seg­ir: „En gildran sem sett var upp af hálf­u þátt­ar­stjórn­end­anna var líka for­dæma­laus. Hvar hefði það gerst í heim­inum að ­spyrill smyglaði sér inn í við­tal við þjóð­ar­leið­toga og færi að taka þátt í við­tali? Bara á Ísland­i.“

Í Frétta­blað­inu skrifa Þor­björn Þórð­ar­son um afsagn­ir ráð­herra í sögu­legu sam­hengi. Í nið­ur­lagi hans seg­ir: „Í ljósi við­bragða ­for­sæt­is­ráð­herra við umfjöllun Kast­ljóss um aflands­fé­lög verður að teljast ósenni­legt að hann segi af sér. Hann, líkt og aðrir íslenskir stjórn­mála­menn, virð­ist líta á það sem póli­tískan ósigur að yfir­gefa emb­ætti fremur en að líta á afsögn­ina sem tæki til að standa vörð um traust í garð emb­ætt­is­ins og til að ­tryggja vinnu­frið í því ráðu­neyti sem hann stýr­ir.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None