Ólafur Ragnar: Sigmundur vildi nota þingrof sem vopn í viðræðum við Bjarna Ben

Ólafur Ragnar að ræða við fjölmiðla í dag.
Ólafur Ragnar að ræða við fjölmiðla í dag.
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, segir að það hafi ekki verið neinn mis­skiln­ingur á milli hans og Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra á fundi þeirra í dag. „At­burð­ar­rásin var nákvæm­lega eins og ég lýst­i,“ sagði for­set­inn í beinni útsend­ingu á RÚV rétt í þessu. Hann sagði samt ekki vera við hæfi að hann „elti ólar við frá­sögn hans.“

Ólafur Ragnar segir að Sig­mundur Davíð hafi mætt með rit­ara rík­is­s­ráðs og ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu með sér á fund þeirra í morg­un. Aldrei fyrr hafi svona lagað gerst í hans emb­ætt­is­tíð. Með í för hafi verið rík­is­ráðs­skjalataskan, sem geymi skjöl rík­is­ráðs­ins. 

Það hafi verið ljóst að Sig­mundur Davíð hafi viljað að Ólafur Ragnar vildi sam­þykkja þing­rofs­beiðni hans, og þegar ljóst hafi orðið að for­set­inn ætl­aði ekki að gera það hafi hann viljað fá fyr­ir­heit um að það yrði gert seinna. 

Auglýsing

„Eins og hann gaf í skyn á blogg­síðu sinni þá tvinn­aði hann saman ann­ars vegar þing­rofið og síðan við­ræður sínar við forman Sjálf­stæð­is­flokks­ins...Það var ljóst í sam­ræðum okkar að einn meg­in­til­gangur þess að koma í flýti hingað var að fá slíkt fyr­ir­heit sem hann gæti síðan notað sem vopn í við­ræðum við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði for­seti Íslands. Hann seg­ist ekki hafa talið við hæfi að for­seta­emb­ættið væri notað með þessum hætti í póli­tískum deil­u­m. 

Ólafur Ragnar vildi við RÚV ekki úti­loka að hann end­ur­skoð­aði ákvörðun sína um að hætta sem for­seti í sum­ar. Hann sagði hins vegar að það ætti að vera fólki alveg ljóst að atburð­ar­rásin í dag sýni ótví­rætt að ákvarð­anir for­set­ans geti haft mikil áhrif. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None