Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og flugvallarvina í Reykjavík, ætlar ekki að snúa aftur til starfa fyrr en yfirferð innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, um hagsmunaskráingu borgarfulltrúa, er lokið en forsætisnefnd Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu um að fela innri endurskoðun og siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga, að taka til skoðunar hagsmunaskráningu borgarfulltrúa. „Ég styð slíka tillögu og mun aðstoða framangreinda aðila við þá vinnu í hvívetna,“ segir Sveinbjörg Birna í yfirlýsingu.
Í fréttaskýringarþættinum Kastljósi sl. sunnudag var fjallað um félög sem voru stofnuð meðan Sveinbjörg Birna var búsett í Luxemborg, áður en hún hóf afskipti af stjórnmálum á Íslandi. „Af því tilefni sendi ég regluverði Reykjavíkurborgar og forseta borgarstjórnar bréf þar sem ég fór yfir þau viðskipti sem fjallað er um í þættinum og bauðst til að veita frekari skýringar teldi regluvörður þörf á því,“ segir í yfirlýsingunni.
Sveinbjörg Birna snýr aftur úr fæðingarorlofi 13. júní, en mun ekki hefja störf á nýjan leik fyrr en skoðun á hagsmunaskráningunni er lokið. „Ég hef tekið þessa ákvörðun til að borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina geti áfram veitt meirihluta borgarstjórnar nauðsynlegt aðhald. Fjárhagsstaða borgarinnar er sem kunnugt er slæm og viðvarandi tap á rekstri borgarinnar á sama tíma og dregið er úr þjónustu. Í mínum huga er þýðingarmest að kjörnir fulltrúar einbeiti sér að leysa slík mál, frekar en að eyða dýrmætum tíma í þref um skráningu mína á hagsmunaskrá,“ segir í yfirlýsingu Sveinbjargar Birnu.
Sveinbjörg átti hlutdeild í aflandsfélagi sem var í fasteignaþróunarverkefni í Panama. Áheimasíðu Reykjavik Media kemur fram að Sveinbjörg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lögfræðistofunar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borgarstjórn ítrekað lýst sig andvíga því að Reykjavíkurborg eða fyrirtæki á hennar vegum eigi aðild að fyrirtækjum á aflandseyjum.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var til umfjöllunar vegna vörslusjóðs sem hann á í Panama. Júlíus gaf út yfirlýsingu vegna málsins í vikunni þar sem hann sagði að sjóðurinn hafi verið stofnaður í svissneskum banka til að mynda eftirlaunasjóðinn sinn, en að honum hafi verið ráðlagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóðurinn lúti svipuðu regluverki og sjálfseignastofnun. Aflandsfélagið heitir Silwood Foundation. Hann hefur nú sagt af sér sem borgarfulltrúi.
Þá var fjallað í þættinum um málefni Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og eiginmanns hennar, Hallbjarnar Karlssonar verkfræðings. Þorbjörg og Hallbjörn eru skráð fyrir félaginu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eignalaust. Þorbjörg Helga var kjörin í borgarstjórn 2006 og sat sem borgarfulltrúi til ársins 2014.