Sveinbjörg snýr ekki aftur fyrr en að yfirferð lokinni

ráðhús reykjavík
Auglýsing

Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, ætlar ekki að snúa aftur til starfa fyrr en yfir­ferð innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borg­ar, um hags­muna­skrá­ingu borg­ar­full­trúa, er lokið en for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti til­lögu um að fela innri end­ur­skoðun og siða­nefnd Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að taka til skoð­unar hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa. „Ég styð slíka til­lögu og mun aðstoða fram­an­greinda aðila við þá vinnu í hví­vetna,“ segir Svein­björg Birna í yfir­lýs­ingu.

Í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kast­ljósi sl. sunnu­dag var fjallað um félög sem voru stofnuð meðan Svein­björg Birna var búsett í Lux­em­borg, áður en hún hóf afskipti af stjórn­málum á Íslandi. „Af því til­efni sendi ég reglu­verði Reykja­vík­ur­borgar og for­seta borg­ar­stjórnar bréf þar sem ég fór yfir þau við­skipti sem fjallað er um í  þætt­inum og bauðst til að veita frek­ari skýr­ingar teldi reglu­vörður þörf á því,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Svein­björg Birna snýr aftur úr fæð­ing­ar­or­lofi 13. júní, en mun ekki hefja störf á nýjan leik fyrr en skoðun á hags­muna­skrán­ing­unni er lok­ið. „Ég hef tekið þessa ákvörðun til að borg­ar­full­trúar Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina geti áfram veitt meiri­hluta borg­ar­stjórnar nauð­syn­legt aðhald. Fjár­hags­staða borg­ar­innar er sem kunn­ugt er slæm og við­var­andi tap á rekstri borg­ar­innar á sama tíma og dregið er úr þjón­ustu. Í mínum huga er þýð­ing­ar­mest að kjörnir full­trúar ein­beiti sér að leysa slík mál, frekar en að eyða dýr­mætum tíma í þref um skrán­ingu mína á hags­muna­skrá,“ segir í yfir­lýs­ingu Svein­bjargar Birnu.

Auglýsing

Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama. Áheima­síðu Reykja­vik Media kemur fram að Svein­björg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lög­fræði­stof­unar Mossack Fon­seca; 7Call­in­vest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borg­ar­stjórn ítrekað lýst sig and­víga því að Reykja­vík­ur­borg eða fyr­ir­tæki á hennar vegum eigi aðild að fyr­ir­tækjum á aflandseyj­u­m. 

Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins,  var til umfjöll­unar vegna vörslu­sjóðs sem hann á í Panama. Júl­íus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í vik­unni þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofn­un. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Founda­tion. Hann hefur nú sagt af sér sem borg­ar­full­trúi.

Þá var fjallað í þætt­inum um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dótt­ur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns henn­ar, Hall­bjarnar Karls­sonar verk­fræð­ings. Þor­björg og Hall­björn eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þor­björg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014. 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None