Sigmundur, Sigurður Ingi og Ásmundur Einar funda í Stjórnarráðshúsinu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Ásmundur Einar Daða­son, þing­flokks­for­maður flokks­ins, funda nú með Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Stjórn­ar­ráðs­hús­inu. Frá þessu er greint á vef RÚV. Þar segir einnig að þing­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks séu undir það búnir að funda síðar í dag varð­andi myndun nýrrar rík­is­stjórn­ar. 

Ásmundur Einar Daða­son, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í hádeg­inu að það væri alveg ljóst að hér tekur við rík­is­stjórn Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar". Hann sagði fullan vilja vera hjá þing­flokkum bæði Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks til að halda áfram stjórn­ar­sam­starf­inu. Rík­is­stjórnin hefði góðan þing­meiri­hluta, stór mál væru framundan og engin ástæða væri til þess að ætla annað en að rík­is­stjórnin héldi áfram störf­um. Sig­urður Ingi hafði skömmu áður sagt að það myndi draga til tíð­inda varð­andi myndun nýrrar rík­is­stjórnar í dag. 

Í dag hafa birst ýmsar kann­anir sem sýna lít­inn stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina. Í könnun MMR, sem var fram­kvæmd á mánu­dag og í gær, kom fram að ein­ungis 26 pró­sent styðja hana sem stend­ur. Það er 6,4 pró­sent minna en í síð­ust mæl­ingu, sem fór fram um miðjan mars. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins minnk­aði um tæp fjögur pró­sentu­stig á milli kann­ana MMR og stóð í 8,7 pró­sentum en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist 22,5 pró­sent.

Auglýsing

Staða rík­is­stjórn­ar­innar var enn verri sam­kvæmt könnum miðla 365 sem birt var í morg­un. Þar kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé með 21,6 pró­sent fylgi. Það lækk­aði mikið á milli kann­ana miðla 365, en í síð­ustu könnun fékk flokk­ur­inn sam­tals 27,6 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er orð­inn næst minnsti flokkur lands­ins, en 7,9 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa flokk frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. Fylgi hans hrynur úr 12,8 pró­sentum á milli kann­anna. Sam­tals mælist því fylgi við sitj­andi valda­flokka undir 30 pró­sent. Í síð­ustu kosn­ingum fengu þeir sam­tals 51,1 pró­sent atkvæða sem dugði til að fá 38 þing­menn og góðan meiri­hluta á Alþingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None