Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að fara í „langþráð frí“ með konu sinni og dóttur þegar hann er búinn að biðjast lausnar sem forsætisráðherra. Þetta kemur fram í viðtali við hann á Eyjunni.
Sigmundur Davíð segir þar að hann finni fyrir feginleika á þessum degi en að tilfinningar hans séu blendnar. „Mér þykir vitaskuld miður að þannig fór, en lít samt mjög stoltur yfir þau verk sem áunnist hafa. Ég er jafnframt þakklátur íslensku þjóðinni fyrir þau tækifæri sem mér hafa gefist til að berjast fyrir hagsmunum Íslands, en sagan mun dæma þau verk afskaplega vel,“ segir hann. „Nú vilja allir skrifa söguna eftir sínu höfði, en hið sanna mun allt koma í ljós og það er aðalatriðið.“
Nú ætli hann í frí sem fyrr segir, og „finna gleðina í vorinu og sumrinu sem er á næsta leiti. Síðar ætla ég að ferðast um landið, tala við fólk og leggja línurnar með því. Ég er óhræddur við það, því framundan eru spennandi tímar,“ segir hann við Eyjuna.