Þrettán milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar verða lagðar í úttekt á íslenska skattkerfinu sem Samráðsvettvangur um aukna hagsæld stendur nú að.
Samráðsvettvangurinn ákvað á fundi í byrjun þessa árs að ráðast í úttektina og koma með tillögur um það hvernig bæta megi skilvirkni skattkerfisins. Úttektin á að vera tilbúin í maí.
„Samráðsvettvangur um aukna hagsæld er þverpólítískt samtal stjórnmálanna, viðskiptalífsins, aðila vinnumarkaðarins og háskólasamfélagsins. Þetta starf hefur þegar borið árangur eins og sést á því að fjölmargar tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangsins hafa orðið að veruleika. Mikilvægt er að halda þessu góða starfi áfram með nýjum verkefnum og áskorunum,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra í tilkynningu um málið.
Samráðsvettvangurinn, sem settur var saman í kjölfar þess að ráðgjafafyrirtækið McKinsey&Company skrifaði skýrslu um hagvaxtarmöguleika Íslendinga árið 2012, er þverpólitískur og þverfaglegur vettvangur sem ætlað er að stiðla að umræðu um leiðir til að tryggja hagsæld á Íslandi. Þar sitja formenn allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, helstu hagsmunasamtök launþega og atvinnurekenda, fulltrúar háskólasamfélagsins, sveitafélaga og stjórnendur fyrirtækja úr ýmsum atvinnugreinum. Vettvangurinn heyrir undir forsætisráðuneytið.
Lítið hefur farið fyrir Samráðsvettvangnum á þessu kjörtímabili. Hann hefur þó fundað reglulega og síðast þann 13. janúar síðastliðinn. Þar var ofangreind úttekt samþykkt.
Var í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
Hugmyndin um heildstæða úttekt á skattkerfinu var hluti af stefnuyfirlýsingu sitjandi ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var á Laugarvatni í maí 2013, sagði að gerð yrði „úttekt á skattkerfinu og skattkerfisbreytingum undanfarinna ára og lagðar fram tillögur til úrbóta með það að markmiði að einfalda skattkerfið, breikka skattstofna, minnka tekjutengingar og draga úr undanskotum.“ Með einföldun skattkerfisins og innleiðingu jákvæðra hvata yrði rekstur fyrirtækja einfaldari og skilvirkari.