Hótanir Sádi-Araba gætu komið í bakið á þeim sjálfum

Sádi-Arabar hóta að selja í skyndi hluta 750 milljarða Bandaríkjadala eignum sínum í Bandaríkjunum, komi til lagabreytinga sem falla þeim ekki í geð. Innistæðulausar hótanir, segja hagfræðingar.

Sádi-Arabía
Auglýsing

Sádi-­Ara­bar gætu til lengdar litið tapað stór­kost­lega á því að selja í skyndi banda­rískar eignir sem landið á, upp á um 750 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um nærri 100 þús­und millj­örðum króna. 

New York Times greindi frá því á föstu­dag­inn, að stjórn­völd í Sádi-­Ar­abíu hafi komið til skila­boðum til skila, í heim­sókn í Was­hington DC á dög­un­um, að til greina kæmi að selja verð­bréf og aðrar eignir í Banda­ríkj­un­um, verði frum­varp sem ger­ir það að verk­um að ríkið njóti ekki leng­ur frið­helgi banda­rískra dóm­stóla vegna hryðju­verka­árása á banda­rískri grund að lög­­­um.

Lögin eru talin áhrifa­mikil fyrir Sádi-­Ar­abíu og form­festa mik­il­vægt við­skiptapóli­tískt sam­band ríkj­anna. Sádi-­Ar­abía hefur í gegnum ára­tugi byggt upp mikla efna­hags­lega hags­muni í Banda­ríkj­un­um. Eign­irnar eru meðal ann­ars bundnar í ýmsum innviðum sem mik­il­vægir eru fyrir olíu­iðn­að, svo sem hafn­ar­starf­semi og vöru­flutn­ing­um. Þá á ríkið sem fyrr segir eignir upp á 750 millj­arða Banda­ríkja­dala sem telj­ast verið auð­selj­an­leg­ar, og eru aðal­lega í trygg­ingum og verð­bréf­um.

Auglýsing

Sádi-­Ar­a­b­ar hafa alltaf þver­tekið fyr­ir það að ríkið hafi átt þátt í árás­unum 11. sept­­em­ber 2001, á tví­bura­t­urn­anna í New York, og að rann­­sókn­­ar­­nefnd 9/​11 hefði ekki fundið neitt sem bend­ir til þess að rík­­is­­stjórn Sádi-­Ar­a­b­íu ætti þátt í árás­un­um. 

Sam­tök aðstand­enda þeirra sem lét­ust í árás­unum hafa lengi barist fyrir því að frið­helgi gagn­vart Sádi-­Ar­abíu verði felld nið­ur, og að öll gögn um árás­ina verði gerð opin­ber, til að leiða hið sanna í ljós. Ekki sé ásætt­an­legt að Banda­ríkin sé með kon­ungs­ríkið í skjóli sínu, ef það hefur átt beina aðkomu að mann­skæð­asta hryðju­verki sem framið hefur verið í Banda­ríkj­un­um.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa fengið bein skilaboð um það frá Sádi-Aröbum að til skyndilegrar eignasölu gæti komið, ef friðhelgi konuningsríkisins verður felld niður. Í New York Times segir að lengi hafi verið uppi get­gátur og orðrómur um að emb­ætt­is­menn í Sádi-­Ar­abíu hafi komið að und­ir­bún­ingi árásanna. Nið­ur­staða og gögn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafa ekki verið gerð opin­ber, og því liggur ekki fyrir hvaða álykt­anir nefndin dró varð­andi þessi atriði. Það þykir gefa vís­bend­ingu um að ein­hver tengsl kunni að vera, fyrst laga­breyt­ingar um frið­helg­ina eru til skoð­unar og umræðu.Lög­in, sem eru frá 1976, gera það ómögu­legt að ákæra með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Sádi-­Ar­abíu eða hátt­setta emb­ætt­is­menn lands­ins fyrir banda­rískum dóm­stól­um, alveg sama hvaða athafnir það eru sem eru til rann­sókn­ar.

Hag­fræð­ing­ar, sem New York Times ræðir við í dag, segja að ef Sádi-­Ara­bar láti verða af því að selja eign­ir, þá gæti það dýpkað efna­hags­leg vanda­mál lands­ins. Kon­ungs­ríkið hefur gengið í gegnum erf­ið­leika að und­an­förnu, eftir mikið verð­fall á olíu og offram­boð á mörk­uð­um. Að und­an­förnu hafa láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki lækkað láns­hæfi­ein­kunnir rík­is­ins um eitt þrep, og hefur það leitt til auk­ins van­trausts á stoðir efna­hags rík­is­ins. 

Þrátt fyrir það, gæti eigna­salan verið högg fyrir Banda­ríkin til skamms tíma, en talið er ólík­legt að Sádi-­Ara­bar láti verða af þessu. Ekki mætti þó van­meta stöðu Sádi-­Ar­abíu og enn­fremur digra sjóði kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar. Þeir væru geymdir víða, og áhrifin af stefnu­breyt­ingu rík­is­ins þegar kemur að ávöxtun fjár­muna geta verið mik­il.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None