Fimm af níu ráðgjöfum í þjóðarátaki um læsi hættir eftir nokkra mánuði

Fimm af níu meðlimum læsisteymis Menntamálastofnunar munu láta af störfum en til stendur að ráða í stöðurnar á næstunni. Verkefnið er í meginatriðum á áætlun.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Gerðar verða breyt­ingar á læsisteymi Mennta­mála­stofn­unar í vor, eftir að fimm af níu ráð­gjöfum teym­is­ins sögðu upp störf­um. Stofn­un­in réð í ágúst 2015 níu ráð­gjafa sem áttu að vinna að inn­leið­ingu aðgerða til efl­ingar læs­is. Ráð­gjaf­arnir tóku til starfa í októ­ber síð­ast­liðn­um, og átakið sem þeir hafa unnið að hófst í jan­ú­ar. Verk­efnið er hluti af aðgerðum í fram­haldi af Hvít­bók mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um umbætur í mennta­málum og Þjóð­ar­sátt­mála um læsi. 

Arnór Guð­munds­son, for­stjóri Mennta­mála­stof­un­ar, stað­festir að fimm af níu með­limum teym­is­ins muni láta af störfum í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Þar af hafi fjórir ákveðið að hverfa aftur til fyrri starfa eftir árs­leyfi en muni áfram eiga sam­starf við Mennta­mála­stofnun á vett­vangi sveit­ar­fé­laga. Ráðið verði í lausar stöður í teym­inu á næst­unni.

Arnór segir að verk­efnið sé í meg­in­at­riðum á áætl­un. Áherslur hafi und­an­farið verið kynntar fyrir sveit­ar­fé­lögum og skólum og ráð­gjöf veitt á nokkrum stöð­um. Grunn­skólum hafi verið sendar upp­lýs­ingar um stöðu sína í lestri út frá fyr­ir­liggj­andi gögnum og verði þeim fylgt eftir með ráð­gjöf næsta haust. Síðar á árinu verði grunn­skólum jafn­framt veittur aðgangur að nýjum stöðu­prófum í læsi fyrir 1.-10. bekk. Stefnt sé að því að vef­síða með ráð­gjöf og fræðslu­efni verði opnuð næsta haust.

Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og Anna Mar­grét Sig­urð­ar­dóttir for­maður Heim­ilis og skóla – lands­sam­taka for­eldra, und­ir­rit­uðu samn­ing um gerð læs­is­sátt­mála fyrir for­eldra og kynn­ing­ar­efnis í Áslands­skóla í Hafn­ar­firði 27. jan­úar 2016. 

Með þjóð­ar­sátt­mál­anum gerðu sveit­ar­fé­lög og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ásamt full­trúum Heim­ilis og skóla með sér samn­ing um sam­eig­in­legan skiln­ing á því að læsi sé nauð­syn­legt til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu þannig að hver og einn geti nýtt hæfi­leika sína sjálfum sér og sam­fé­lag­inu öllu til vel­ferð­ar. Einnig sam­þykktu samn­ings­að­ilar að þeir myndu vinna að því eftir fremsta megni að a.m.k. 90% nem­enda í sveit­ar­fé­lag­inu gætu lesið sér til gagns árið 2018. Áhersla var lögð á sam­vinnu við for­eldra og for­eldra­fé­lög til að ná mark­miðum samn­ings­ins.

Fram­lag ráðu­neyt­is­ins til samn­ings­ins var 14 millj­ónir króna. Samn­ing­ur­inn gildir frá 1. jan­úar 2016 til árs­loka 2016. Þetta kemur fram á heima­síðu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None