Orðið „mjög brýnt“ að hefja haftalosun

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að aðstæður til losunar hafta á innlenda aðila verði vart betri en nú.

Már Guðmundsson
Auglýsing

„Eftir því sem þjóð­ar­búið og fjár­mála­kerfið stendur sterkar því minni eru líkur á fjár­magns­flótta. Að því leyti verða aðstæður til los­unar fjár­magns­hafta vart betri en nú. Reyndar er orðið mjög brýnt að hefja losun gagn­vart inn­lendum aðilum þar sem höft­in valda vax­andi bjögun í þjóð­ar­bú­skapnum eins og birt­ist m.a. í geng­is­hækk­un­ar­þrýst­ingi og hækkun eigna­verðs. Þá er fjár­magnsinn­flæði hafið sem eykur enn á bjög­un­ina og ger­ir losun fjár­magns­hafta brýnni en ella.“

Þetta segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í inn­gangi að Fjár­mála­stöð­ug­leika, sér­riti Seðla­banka Íslands um fjár­mála­stöð­ug­leika í hag­kerf­inu, sem kom út í dag.

Fjár­magns­höft hafa verið lög­bundin frá því í nóv­em­ber 2008, þegar þeim var komið á til að stöðva stjórn­laust fall gengis krón­unn­ar, eftir fall fjár­mála­kerf­is­ins, og koma stöð­ug­leika á geng­ið.

Auglýsing

Jafn­framt segir í rit­inu að helstu hindr­unum fyrir losun fjár­magns­hafta hafi nú verið rutt úr vegi með lausn­inni sem komin er í mál­efni slita­búa föllnu bank­anna. Flestir hag­vísar vísi nú í rétta átt, og greina megi auk­inn styrk heim­ila og fyr­ir­tækja. Hag­kerfið standi nú styrkum fót­um, og for­sendur fjár­mála­stöð­ug­leika þar með einnig. „Stærst­u hindr­un­inni fyrir almennri losun fjár­magns­hafta hefur því verið rutt úr vegi. Með því að ­upp­fylla stöð­ug­leika­skil­yrði með fram­sali krónu­eigna búanna, umbreyt­ingu gjald­eyr­is­inn­lána þeirra í banka­kerf­inu í lengri lán og end­ur­greiðslu rík­is­fyr­ir­greiðslu sem tengd­ist stofn­un nýju bank­anna, var greiðslu­jafn­að­ar­á­hættu af slitum búanna eytt. Aðgerðin hafði það í för með sér að hreinar erlendar skuldir þjóð­bús­ins lækk­uðu um sem nemur fimmt­ung af lands­fram­leiðslu. Skuldir rík­is­sjóðs munu einnig lækka veru­lega í fram­hald­inu. Þessi nið­ur­staða hefur þegar skilað sér í auknu trausti á Íslandi og hækkun láns­hæf­is­mats rík­is­sjóðs,“ segir Már í inn­gangi sín­um.

Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri Fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands og ritstjóri rits bankans um fjármálastöðugleika. Mynd: Seðlabankinn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None