Barack Obama reynir að róa Sádi-Araba

Fulltrúar konungsríkisins Sádi-Arabíu eru sagðir hafa hótað bandarískum stjórnvöldum viðskiptalegu tjóni, með skyndisölu á eignum upp á 750 milljarða Bandaríkjadala, ef friðhelgi ríkisins yrði felld niður. Obama reynir að stilla til friðar.

obama_hvitahusid.jpg
Auglýsing

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, fór í skyndi til Sádi-­Ar­abíu í vik­unni til að eiga fundi með ráða­mönnum og ráð­gjöfum kon­ungs­rík­is­ins, með það að mark­aði að draga úr spennu milli ríkj­anna tveggja. 

Sádi-­Ara­bar eru sagðir hafa hótað banda­rískum stjórn­völdum því að skynd­iselja banda­rískar eign­ir, þar á meðal rík­is­skulda­bréf og eign­ar­hluti í stórum banda­rískum fyr­ir­tækj­um, fyrir um 750 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 100 þús­und millj­örðum króna. Ástæðan er sú, að banda­rísk stjórn­völd eru að skoða að fella niður frið­helgi ráða­manna Sádi-­Ar­abíu fyrir banda­rískum dóm­stól­um, en hún byggir á lög­gjöf frá árinu 1976. 

Lögin eru meðal lyk­il­for­sendna fyrir sterku og víð­tæku efna­hag­spóli­tísku sam­bandi Banda­ríkj­anna og Sádi-­Ar­abíu um ára­tuga skeið. 

Auglýsing

Árásirnar 11. september 2001, á tvíburaturnanna í New York, eru mannskæðustu hryðjuverkaárásir í sögu Bandaríkjanna. Mynd: EPA.

Ástæðan fyrir því að Banda­ríkin íhuga nú að fella niður frið­helg­ina, eru upp­lýs­ingar sem fram hafa komið um tengsl árásanna 11. sept­em­ber 2001 á tví­bura­t­urn­anna í New York, sem urðu rúm­lega þrjú þús­und manns að bana. Aðstand­endur þeirra sem lét­ust hafa skipu­lega þrýst á yfir­völd um að birta öll gögn um rann­sókn á atburð­un­um, en hluti þeirra hefur aldrei verið birtur opin­ber­lega.

Í Wall Street Journal í dag, kemur fram að Obama freisti þess að róa Sádi-­Ara­ba, og einnig miðla málum í hættu­lega stirðum sam­skiptum Sádi-­Araba við ráða­menn í Íran. 

Obama er sagður freista þess að styrkja sam­bandið við Sádi-­Ar­ab­íu, og um leið reyna að miðla málum þegar kemur að Íran, sem nú er byrj­aða að byggja upp útflutn­ings­við­skipti eftir að efna­hags­þving­anir voru aflagð­ar. Mikið sé í húfi, enda geti frek­ari ófriður í Mið­aust­ur­löndum grafið undan til­raunum til að stilla til friðar í heims­hlut­an­um, sem ein­kennst hefur af ófriði, stríðs­á­tökum og póli­tískum glund­roða und­an­farin ár.

Sádi-­Ara­bar eru auk þess sagðir vera komnir í varn­ar­stell­ingar efna­hags­lega, eftir að láns­hæf­is­ein­kunn rík­is­ins var lækk­uð. Versn­andi staða er alfarið rakin til mik­illar verð­lækk­unar á olíu. Tunnan af hrá­olíu hefur lækkað úr 110 Banda­ríkja­dölum niður í rúm­lega 40 dali á einu og hálfu ári. Olíu­fram­leiðslu­ríki náðu ekki saman um aðgerðir til að draga úr fram­leiðslu á fundi OPEC ríkja í Doha um síð­ustu helgi. Það eru einkum Íranir sem eru sagðir hafa staðið í vegi fyrir slíkum aðgerð­um, sem hefðu vænt­an­lega leitt til minna fram­boðs og þar með hærra verðs. 









Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None