Sigmundur fékk helstu fjölmiðlastjórnendur á sinn fund

Fyrrverandi forsætisráðherra kallaði útvarpsstjóra, ritstjóra og fréttastjóra 365 á fundi. Ritstjóri 365 segir fregnir af ófaglegum samskiptum hennar við þáverandi forsætisráðherra ímyndun.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk Sigurjón M. Egilsson, Kristínu Þorsteinsdóttur og Pál Magnússon á fundi til sín.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk Sigurjón M. Egilsson, Kristínu Þorsteinsdóttur og Pál Magnússon á fundi til sín.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hitti þáver­andi útvarps­stjóra RÚV, frétta­stjóra 365 og rit­stjóra 365 á fundum á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Á fundum með útvarps­stjóra og frétta­stjóra 365 viðr­aði Sig­mundur Davíð áhyggjur sínar af nei­kvæðri umfjöllun miðl­anna í sinn garð. Rit­stjóri 365 seg­ist ekki hafa rætt frétta­flutn­ing við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Fregnir af ófag­legum sam­skiptum þeirra sé ímynd­un. 

Sig­mundur flutti leið­ara eftir fund

Þáver­andi frétta­stjóri 365, Sig­ur­jón M. Egils­son, SME, var boð­aður til Sig­mundar í stjórn­ar­ráðið vegna fréttaum­fjöll­un­ar. Sig­ur­jón tal­aði um fund­inn í leið­ara sínum í útvarps­þætt­inum Sprengisandi um síð­ustu helgi. Á fund­inum sýndi Sig­mundur Sig­ur­jóni grein­ingu á gagn­rýni frétta­stjór­ans í skoð­anapistlum sínum og sam­kvæmt henni hafi hann oft­ast gagn­rýnt Fram­sókn­ar­flokk­inn. Tveimur mán­uðum síðar var Sig­ur­jón ekki lengur frétta­stjóri 365. 

Í maí 2015 fékk Sig­mundur svo að lesa leiðar­ann í Sprengisandi hjá Sig­ur­jóni. Í kynn­ing­unni á vef þátt­ar­ins seg­ir: „­Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra flutti inn­gangs­orð þessa þáttar af til­efni tveggja ára afmæli rík­is­stjórnar hans. Hann sagði meðal ann­ars, að mörg til­efni séu til bjart­sýn­i," skrifar Sig­ur­jón.  

Auglýsing

Kristín segir fregnir af ófag­legum sam­skiptum „ímynd­un" 

Stundin greinir frá því í blaði sínu í dag að Kristín Þor­steins­dótt­ir, aðal­rit­stjóri 365, hafi talað við Sig­ur­jón nokkru áður en hann hitti Sig­mund Dav­íð. Þar segir að í sam­tal­inu hafi Kristín gagn­rýnt Sig­ur­jón fyrir að vera „óhóf­lega nei­kvæð­ur” í garð rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Stundin segir Krist­ínu hafa hitt Sig­mund á fundi þar sem umfjall­anir um hann og rík­is­stjórn hans voru til umræðu. Kristín stað­festir við Kjarn­ann að hún hafi fundað með þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Í skrif­legu svari sínu til Kjarn­ans vísar Kristín því á bug að hafa rætt frétta­flutn­ing við Sig­mund Dav­íð. Hún seg­ist hafa hitt hann skömmu eftir að hún sett­ist í rit­stjóra­stól, en frétta­flutn­ingur hafi ekki verið ræddur á þeim fundi. Þá segir hún: 

„Hvorki nafn Sig­ur­jóns Magn­úsar Egils­sonar né ann­arra starfs­manna á rit­stjórn 365 bar á góma. Mér finnst mjög lík­legt að ég hafi sagt Sig­ur­jóni frá fund­inum án þess að ég muni það nákvæm­lega." 

Spurð hvort hún hafi gagn­rýnt Sig­ur­jón fyrir að hafa verið „óhóf­lega nei­kvæð­ur" í garð rík­is­stjórn­ar­inn­ar, segir Krist­ín: 

„Nei. Hug­myndir sem fram hafa komið í dag um að ég eigi eða hafi átt í ófag­legum sam­skiptum við fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra eru í­mynd­un." 

Útvarps­stjóri kall­aður á teppið

Stundin greinir einnig frá því að sum­arið 2013, eftir að rík­is­stjórnin var mynd­uð, hafi Sig­mund­ur, þá for­sæt­is­ráð­herra, boðað Pál Magn­ús­son, þáver­andi útvarps­stjóra, á fund í stjórn­ar­ráð­inu þar sem hann sýndi honum þrjár möppur með úrklippum og afritum af gagn­rýni RÚV á Fram­sókn­ar­flokk­inn. Í Stund­inni kemur fram að möpp­urnar hafi talið nokkur hund­ruð blað­síð­ur. Sig­mundur vitn­aði líka í skoð­anapistla ónafn­greinds starfs­manns RÚV þar sem hann gagn­rýndi flokk­inn. Páll stað­festir við Stund­ina að fund­ur­inn hafi átt sér stað. Hann hætti sem útvarps­stjóri nokkrum mán­uðum síð­ar. 

Magnús Geir Þórð­ar­son, núver­andi útvarps­stjóri, stað­festir einnig að honum hafi borist „ábend­ing­ar“ og „at­huga­semd­ir“ frá vald­höfum og full­trúum þeirra. Hann vill ekki svara hvort þær hafi farið fram á fundum með for­sæt­is­ráð­herra. Í sam­tali við RÚV stað­festir hann að hann hafi gert athuga­semdir við vald­hafa þegar þeir koma með óvið­geig­andi athuga­semdir varð­andi frétta­flutn­ing RÚV. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None