Ingibjörg breytti ekki skráningu 365 - Um mistök að ræða

365 miðlar
Auglýsing

Ingi­björg Stef­anía Pálma­dóttir var sögð skráð fyrir 77,8 pró­senta hlut í fjöl­miðla­sam­steyp­unni 365 í gagna­grunni Credit­info í morg­un. Áður var Ingi­björg skráð fyrir sama hlut í fyr­ir­tæk­inu, en það var í gegn um íslenskt félag og tvö félög sem henni tengd­ust í Lux­emburg.  Breyt­ingin var gerð í gær og mbl.is greindi frá. Um mis­tök var að ræða og hefur Credit­info sent frá sér til­kynn­ingu þess efn­is. Í til­kynn­ingu vegna fréttar mbl.is seg­ir: „Fyr­ir mis­­tök voru upp­­lýs­ing­ar um hlut­hafa í 365 miðlum hf. rang­­lega slegn­ar inn við yf­ir­­ferð hjá Cred­it­in­fo þann 20. apríl 2016. Þar var hlut­ur Ing­i­­bjarg­ar Stef­an­íu Pálma­dótt­ur skráður 77,8%. Hið rétta er að sam­an­lagður hlut­ur Ing­i­­bjarg­ar og fé­laga í henn­ar eigu er 77,8% eins og fram kem­ur í árs­­skýrslu fé­lags­ins frá 2014, en það eru nýj­­ustu upp­­lýs­ing­ar frá fé­lag­inu um hlut­hafa. Cred­it­in­fo biðst vel­v­irð­ing­ar á þess­um mis­­tök­um og hafa þau verið leið­rétt.“

Í frétt mbl.is sagði að félagið Moon Capi­tal S.á.r.l., sem er í eigu Ingi­bjargar í Lúx­emburg, hafi átt 55% hlut í 365 miðl­um. Fé­lagið ML 102 ehf., dótt­ur­fé­lag Moon Capi­tal S.á.r.l., átti 12,8% hlut, og IP Stu­di­um ehf., líka í eigu Ing­i­­bjarg­­ar, átti 10,1% hlut í 365. Sam­an­lagt átti Ing­i­­björg tæp­lega 80 pró­senta hlut í 365 í gegn um þessi félög, en með nýju skrán­ing­unni hef­ur hlut­ur Moon Capi­tal og ML 102 verið færður und­ir hana beint. Töl­urnar byggðu á upp­lýs­ingum frá fjöl­miðla­nefnd og Credit­in­fo. Um mis­tök var að ræða.

Fréttin var upp­færð klukkan 14:50 í kjöl­far yfir­lýs­ingar Credit­in­fo.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None