Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hefur boðað til blaðamannafundar á Alþingi í dag klukkan 15. Samkvæmt heimildum Kjarnans mun hann þar tilkynna fjölmiðlum ákvörðun sína varðandi hvort hann ætli að gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður flokksins á komandi landsfundi. Fram kom í úttekt Kjarnans í síðustu viku að Árni Páll ætlar að gefa kost á sér áfram til þingmennsku í komandi kosningum.
Ákveðið var að flýta landsfundi Samfylkingarinnar í ljósi slaks fylgis flokksins í skoðanakönnunum. Hann verður haldinn í byrjun júní næstkomandi og verður ný forysta kjörin. Þeir sem hafa boðið sig fram til formanns flokksins eru Helgi Hjörvar þingflokksformaður, Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður, Oddný Harðardóttir, þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra, og Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og starfsmaður í félagsmiðstöð.
Katrín Júlíusdóttir varaformaður hefur ákveðið að hætta á þingi eftir þetta kjörtímabil. Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og formaður flokksins í Kópavogi, hefur boðið sig fram í embættið.