Forsætisráðuneytið notaði rangar tölur um tekjujöfnuð

Forsætisráðuneytið notaði rangar tölur til að reikna út tekjujöfnuð á Íslandi. Send var út frétt sem átti að byggja á tölum frá árinu 2014 en voru í raun frá 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson er forsætisráðherra Íslands.
Sigurður Ingi Jóhannsson er forsætisráðherra Íslands.
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið sendi frá sér frétt í dag sem byggði á röngum upp­lýs­ing­um. Fréttin var um að tekju­jöfn­uður hafi aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014 og átti að byggja frá tölum þess árs. Raunin er að töl­urnar sem for­sæt­is­ráðu­neytið studd­ist við voru frá árinu 2013. 

Í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að tekju­jöfn­uður hafi aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014, og það ár hafi ekk­ert Evr­ópu­ríki búið við jafn­mik­inn tekju­jöfnuð og Ísland. Fréttin byggði á  tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Eyjan greinir frá því að fréttin hafi verið byggð á röngum for­send­um, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni. Töl­urnar sem Eurostat notar byggja á Evr­ópsku lífs­kjara­rann­sókn­inni og end­ur­spegla tekju­mæl­ingar árs­ins á und­an, það er upp­lýs­ingar fyrir árið 2013.

Auglýsing

„Sig­urður Már Jóns­son, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sagði í sam­tali við Eyj­una að um mis­tök hafi verið að ræða. Rétt sé að upp­lýs­ing­arnar sem um ræði nái til tekna fyrir árið 2013 en ekki 2014. Til standi að senda út leið­rétt­ingu vegna þessa nú á næst­unn­i," segir í frétt Eyj­unn­ar. 

Upp­fært klukkan 16:30: Fréttin var upp­færð eftir að ljóst var að frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var röng. 

Upp­runar­legu frétt­ina má sjá hér að neð­an: 

Tekju­­jöfn­uður hefur aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014, og það ár bjó ekk­ert Evr­­ópu­­ríki við jafn­­­mik­inn tekju­­jöfnuð og Ísland. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­­sæt­is­ráðu­­neyt­inu, sem byggir á nýjum tölum frá Eurostat, hag­­stofu Evr­­ópu­­sam­­bands­ins. 

Sam­kvæmt Gin­i-­stuðl­in­um, sem er not­aður sem mæli­kvarði á tekju­dreif­ingu, fóru Íslend­ingar fram úr Norð­mönnum í tekju­jöfnun árið 2014, en árin á undan höfðu Norð­menn verið með lægstan Gin­i-­stuðul og þar með með mestan tekju­jöfn­uð. Stuð­ull­inn fyrir Ísland lækk­aði úr 24 árið 2013 í 22,7 árið 2014. 

Sam­kvæmt skil­grein­ingu Eurostat eru þeir, sem eru með lægri ráð­stöf­un­ar­tekjur eftir opin­berar til­færslur en sem nemur 60 pró­sentum af mið­gildi ráð­stöf­un­ar­tekna, í hættu á að verða fátækt að bráð. Á Íslandi eru 7,2 pró­sent þjóð­ar­innar með ráð­stöf­un­ar­tekjur undir 60% af mið­gild­inu, en það er lægra hlut­fall en hjá öðrum Evr­ópu­ríkj­um. Hlut­fallið mælist á bil­inu 11 til 15 pró­sent á hinum Norð­ur­lönd­unum en með­al­talið í Evr­ópu­sam­band­inu er 16,3%. Mið­gildi tekna er svipað á Íslandi og í Dan­mörku, Sví­þjóð og Finn­landi, en tekjur eru hærri í Nor­egi, segir í til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None