Vill 30 milljónir í bætur frá 365 vegna Hlíðarmáls

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ætlar að höfða prófmál fyrir hönd skjólstæðinga sinna til að kanna hvort að deiling á færslu á samfélagsmiðlum sé opinber deiling á ærumeiðandi ummælum. Líti dómstólar svo á gæti 2.350 manns verið stefnt.

Villi
Auglýsing

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur krafið fjöl­miðla­fyr­ir­tækið 365 miðla og fjóra starfs­menn þess um sam­tals 30 millj­ónir króna vegna frétta­flutn­ings af Hlíð­ar­mál­inu svo­kall­aða. Krafan er bæði upp á skaða­bætur og lög­manns­kostn­að. Auk þess fer hann fram á afsök­un­ar­beiðni. Málið er það langstærsta sinnar teg­undar sem upp hefur komið á Íslandi. Þetta kemur fram í DV í dag. Kristín Þor­steins­dótt­ir, rit­stjóri 365 miðla, hefur sagt að fyr­ir­tækið standi við frétta­flutn­ing sinn af mál­in­u. 

Kjarn­inn greindi frá því í gær að 22 kröfu­bréf hefðu verið send út vegna máls­ins. Auk 365 miðla og starfs­manna þeirra fengu ýmsir bréf vegna ummæla sem þeir létu falla um málið á sam­fé­lags­miðl­um. Vil­hjálmur segir í DV í dag að eitt þeirra bréfa sem hann sendi út um helg­ina sé próf­mál þar sem hann ætli að láta á það reyna hvort að dreif­ing á færslu á sam­fé­lags­miðlum geti flokk­ast sem opin­ber dreif­ing á æru­meið­andi ummæl­um. Kom­ist dóm­stólar að því að svo sé gætu allir þeir 2.350 sem deildu færslu þar sem skjól­stæð­ingar hans í mál­inu, tveir ungir menn, voru nafn­greind­ir, myndir birtar af þeim og þeir kall­aðir nauð­gar­ar.

Íbúð sögð búin tækjum til ofbeld­isiðk­unar

For­­saga máls­ins er sú að Frétta­­blaðið birti for­­síð­u­frétt í nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum undir fyr­ir­­sögn­inni: Íbúð í Hlíð­unum útbúin til nauð­g­ana. Áður hafði verið sagt frá rann­­sókn lög­­­reglu á tveimur aðskildum kyn­­ferð­is­brota­­málum vegna meintra árása í fjöl­býl­is­­­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær ­konur kærðu tvo karl­­­menn fyrir kyn­­­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­­­blaðs­ins sagði að „Sam­­­kvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­­­irnar hrotta­­­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isið­k­un­­­ar“. Fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­­­töku.

Auglýsing

Mikil reið­i­alda reis í kjöl­far frétt­­ar­inn­­ar, boðað var til mót­­mæla fyrir utan lög­­­reglu­­stöð­ina á Hverf­is­­götu og menn­irnir voru nafn­­greindir á sam­­fé­lags­miðlum og birtar af þeim mynd­­ir.

Rann­­sóknir á nauð­g­un­­ar­kær­unum fóru á borð hér­­aðs­sak­­sókn­­ara og lét hann bæði málin niður falla. Annar mað­­ur­inn hafði einnig kært aðra kon­una fyrir kyn­­ferð­is­brot en það mál var líka látið niður falla.

Vil­hjálmur sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær að mög­u­­legt sé að stefn­­urnar verði tvær, ann­­ars vegar ómerk­ing ummæla og miska­bæt­­ur, og svo verði höfðað sér­­stakt mál um skaða­bætur fyrir fjár­­tjón, atvinn­u­tjón, var­an­­legan miska og var­an­­lega örorku. Að sögn Vil­hjálms eru menn­irnir tveir enn atvinn­u­­lausir og í sál­fræð­i­­með­­­ferð eftir frétta­­flutn­ing­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None