Samið um orku til kísilvers Thorsil í Helguvík

Thorsil hefur tryggt sér orku fyrir kísilver í Helguvík. Samningurinn þarfnast samþykkis ESA áður en hann tekur gildi, en áætlað er að verið opni árið 2018.

Búrfellsvirkjun
Búrfellsvirkjun
Auglýsing

Lands­virkjun og Thorsil hafa skrifað undir samn­ing um afhend­ingu á raf­magni til kís­il­vers Thorsil í Helgu­vík. Lands­virkjun mun sjá Thorsil fyrir 55 mega­vöttum af afli, eða sem sam­svarar 460 gíga­vatt­stundum af orku á ári. Afhend­ing orkunnar hefst árið 2018 þegar áætlað er að kís­il­verið taki til starfa, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Lands­virkj­un. 

Samn­ing­ur­inn er háður skil­yrð­um, meðal ann­ars verður Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, að sam­þykkja hann til þess að hann taki gild­i. 

Í októ­ber í fyrra var greint frá því að fyr­ir­tækin hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um drög að raf­magns­samn­ingi, en þá var gert ráð fyrir því að Lands­virkjun myndi afhenda allt að 67 mega­vött í áföng­um. HS Orka hefur einnig und­ir­ritað orku­sölu­samn­ing við Thorsil um afhend­ingu á allt að 32 mega­vött­um, en Thorsil hefur sagt að fyr­ir­tækið þurfi 87 mega­vött til að fram­leiðla 54 þús­und tonn af kís­il­málmi á ári. 

Auglýsing

Umdeild bygg­ing kís­il­vers

Reykja­­nes­­bær glímir við mik­inn skulda­­vanda. Sveit­­ar­­fé­lagið er það skuld­­settasta á land­inu. Skuldir þess voru tæp­­lega 41 millj­­arður króna í lok árs 2014. Skuld­­irnar eru rúm­­lega 250 pró­­sent af reglu­­legum tekjum sveit­­ar­­fé­lags­ins en sam­­kvæmt sveit­­ar­­stjórn­­­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyf­i­­legt skulda­hlut­­fall að hámarki 150 pró­­sent. Skulda­­staða Reykja­­nes­bæjar er því bein­­leiðis í and­­stöðu við lög.

Skulda­vand­inn er að stóru leyti til­­kom­inn vegna fjár­­­fest­inga í hafn­­ar­fram­­kvæmdum við Helg­u­vík, Reykja­nes­höfn, sem sveit­­ar­­fé­lagið er í ábyrgð fyr­­ir. Fjár­fest­ing­arnar hafa tengst áætl­aðri upp­bygg­ingu ýmissar stór­iðju í Helgu­vík. 

Thorsil er stærsti við­skipta­vinur Reykja­nes­hafn­ar, en höfnin hefur ítrekað gefið Thorsil greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir kís­il­verk­smiðj­una. Gjöldin átti að greiða 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en frestur fékkst til 15. des­em­ber, svo til 15. mars og nú til 15. maí. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None