Sigurður Ingi og Lilja Dögg hitta Obama í fyrsta sinn

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands hitta Bandaríkjaforseta í þeirra fyrstu opinberu heimsókn í dag. Dagskráin er þétt og verður meðal annars rætt um samstarf Norðurlandanna við Bandaríkin.

Nýju ráðherrar ríkisstjórnarinnar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hitta Obama við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í dag.
Nýju ráðherrar ríkisstjórnarinnar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hitta Obama við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í dag.
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra mæta í sína fyrstu opin­beru heim­sókn í dag. Um er að ræða opin­bera heim­sókn leið­toga Norð­ur­land­anna í boði Barack Obama Banda­ríkja­for­seta. Fyrsta opin­bera heim­sókn íslensk ráð­manns til Banda­ríkj­anna var árið 1944 þegar Sveinn Björns­son, for­seti Íslands, fór ásamt þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra til Was­hington að hitta Frank­lin D. Roossevelt for­seta. 

Að þessu sinni munu for­seti Finn­lands og for­sæt­is­ráð­herrar hinna fjög­urra Norð­ur­land­anna funda með Obama og allir utan­rík­is­ráð­herr­arnir funda með John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.  Til stendur að ræða meðal ann­ars aukið sam­starf milli land­anna, aukna frí­versl­un, sam­starf til að sporna gegn hryðju­verkaógn­inni og upp­gangi öfga­sinna, umhverf­is­mál, mál­efni Norð­ur­slóða og flótta­manna­mál. 

Nor­rænir utan­rík­is­ráð­herrar taka höndum saman

Utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna birtu sam­eig­in­lega grein í Huffington Post í vik­unni þar sem rætt var um mik­il­vægi áfram­hald­andi sam­starfs ríkj­anna. Í grein­inni er áhersla lögð á að styrk­leikar land­anna beggja vegna Atlands­hafs­ins nái að njóta sín í sam­vinnu ríkj­anna. Ráð­herr­arnir segja að nor­ræna mód­elið hafi þjónað íbúum sínum vel, með efna­hags­legri vel­megun og góðu vel­ferð­ar­kerfi. Ein­kenni nor­ræna kerf­is­ins séu mikið traust almenn­ings á stjórn­málum og áhersla á jöfn tæki­færi. 

Auglýsing

Utan­ríks­ráð­herr­arnir hrósa Banda­ríkj­unum fyrir að veita öðrum þjóðum inn­blástur þegar það kemur að sterkum hugs­uðum og þróun nýrra hug­mynda. Tölu­verð áhersla er einnig lögð á jafn­rétti kynj­anna, en afstaða grein­ar­höf­unda að mik­il­vægt sé að konur séu hluti af frið­ar­um­leit­unum og sé tryggt sæti við borðið er ítrek­uð. Þá er farið er yfir sam­eig­in­lega hags­muni ríkj­anna sex,  áskor­anir og tæki­færi, þar sem sam­eig­in­legur ávinn­ingur af sam­starfi land­anna er und­ir­strik­að­ur. 

Þétt dag­skrá í dag

Fund­ur­inn í dag hefst með því að Obama tekur form­lega á móti leið­tog­unum við Hvíta húsið við hátíð­lega athöfn. Dag­skráin verður þétt, utan­rík­is­ráð­herrar snæða hádeg­is­verð í boði John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og endar dag­ur­inn á kvöld­verða­boði í boði for­set­ans og for­seta­frú­ar­inn­ar, Michelle Obama. Frétta­rit­ari Kjarn­ans verður á staðnum og hægt verður að fylgj­ast með fram­gangi fund­ar­ins á Twitter undir myllu­merk­inu #heimsoknUSA. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None