Sex frambjóðendur heltast líklega úr lestinni

Ætla má að Baldur Ágústsson, Benedikt Kristján Mewes, Elísabet Jökulsdóttir, Magnús Ingi Magnússon og Magnús Ingberg Jónsson nái ekki að vera með í baráttunni um Bessastaði í vor. Þau ná líklega ekki nægum fjölda meðmælenda, sem þau eiga að skila í dag.

Ástþór Magnússon, Hildur Þórðardóttir, Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason segjast öll hafa safnað tilskyldum fjölda. Benedikt Kristján Mewes náði því ekki, en skilafrestur rennur út í dag.
Ástþór Magnússon, Hildur Þórðardóttir, Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason segjast öll hafa safnað tilskyldum fjölda. Benedikt Kristján Mewes náði því ekki, en skilafrestur rennur út í dag.
Auglýsing

Níu af fjórtán for­seta­fram­bjóð­endum segj­ast vera búnir að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta sem þarf til að fá form­legt for­seta­fram­boð gilt. Þeir sem hafa enn ekki safnað nægum fjölda eru Baldur Ágústs­son, Bene­dikt Krist­ján Mewes, Magnús Ing­berg Jóns­son, Elísa­bet Jök­uls­dóttir og Magnús Ingi Magn­ús­son, eða Texa­s-Maggi. Í dag til­kynnti Ari Jós­eps­son að hann ætli ekki að bjóða sig fram, en hann sag­ist engu að síður við Frétta­blaðið hafa safnað til­skildum fjölda. Þau sem segj­ast vera búin að safna nægum und­ir­skriftum og ætla að skila inn í dag eru þau Andri Snær Magna­son, Ást­þór Magn­ús­son, Davíð Odds­son, Guðni Th. Jóhann­es­son, Guð­rún Mar­grét Páls­dótt­ir, Halla Tóm­as­dótt­ir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jóns­son. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag. 

Skila­frestur rennur út í dag

Fram­bjóð­endur þurfa að skila inn með­mæl­endum í öllum fjórð­ungum lands­ins í dag, und­ir­skriftum 1.500 manns. Yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmum norður og suður taka á móti listum í Ráð­húsi Reykja­víkur í dag á milli klukkan 13 og 15. 

Farið verður yfir listana næstu viku og nöfn og kenni­tölur bornar saman við þjóð­skrá og gengið úr skugga um að ekk­ert nafn sé tvisvar, þar sem það ógildir und­ir­skrift­ina. Fram­bjóð­endur fá svo nokkra daga fram að mið­nætti 20. maí næst­kom­andi, föstu­dag­ur­inn í næstu viku, til að lag­færa sína lista ef eitt­hvað vantar upp á. 

Auglýsing

Sex náðu inn árið 2012

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum 2012 voru sex manns í fram­boði og var það sögu­legur fjöldi. Fram­boð Ást­þórs Magn­ús­sonar hafði verið dæmt ógilt þar sem ekki lá fyrir lög­boðið vott­orð frá yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæm­is. Fram­boð Ást­þórs hafði líka verið dæmt ógilt árið 2000, þegar hann náði ekki að skila inn til­skyldum fjölda með­mæl­enda á réttum tíma.   

Fram­bjóð­endur 2012 voru þau Andrea Jóhanna Ólafs­dótt­ir, Ari Trausti Guð­munds­son, Hannes Bjarna­son, Her­dís Þor­geirs­dótt­ir, Ólafur Ragnar Gríms­son og Þóra Arn­órs­dótt­ir. 

Fréttin var upp­færð klukkan 15:55 þegar RÚV greindi frá því að Ari Jós­eps­son væri hættur við fram­boð. Hann hafði áður sagt við Frétta­blaðið að hann væri búinn að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None