Gunnar Bragi: Engin sanngirni að taka sérstakt gjald af sjávarútvegi

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir ósanngjarnt að taka gjald af sjávarútvegi en ekki öðrum atvinnugreinum sem nota auðlindir landsins.

Gunnar Bragi
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að það sé engin sann­girni í því að taka sér­stakt gjald af einni atvinnu­grein eins og sjáv­ar­út­vegi. Það væri skyn­sam­legt að gera ekki upp á milli atvinnu­greina sem nýti auð­lindir lands­ins og best væri að nota skatt­kerfið til að fá auð­linda­gjald í rík­is­sjóð. 

Gunnar Bragi svar­aði fyr­ir­spurn frá Odd­nýju G. Harð­ar­dótt­ur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um sjáv­ar­út­vegs­mál í þing­inu í dag. Oddný spurði hann um veiði­gjöld. „Við Íslend­ingar erum rík af auð­lindum en við erum ekki góð í að semja um verð fyrir nýt­ingu þeirra. ­Út­gerð­ar­fyr­ir­tæki greiða til dæmis veiði­gjald sem er lang­t undir mark­aðs­verði. Ég tel að opin­bert útboð sé skil­virkasta ­leiðin til að skila arð­inum af fisk­veiði­auð­lind­inni til­ ­þjóð­ar­inn­ar,“ sagði Oddný meðal ann­ars.

„Við notum nú þegar útboð á útblást­urs­heim­ild­um, fjar­skipta­tíðnisviðum og sér­leyfum í sam­göngum með góð­u­m ár­angri. Útboð myndi draga fram sann­gjarna sam­keppni á milli­ ­sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og tryggja minni fyr­ir­tækjum aðgang að kvóta. Verðið yrði það sem fyr­ir­tæki væru reiðu­búin að greiða fyrir afla­heim­ild­irnar og yrði um leið það veiði­gjald ­sem rynni í rík­is­sjóð,“ sagði Odd­ný. Hún spurði Gunnar Braga hvort hann teldi það ekki rétt­læt­is­mál að í rík­is­sjóð renni stærri hluti af fisk­veiði­auð­lind­inni en nú sé. 

Auglýsing

„Ég hef nú gjarnan litið á að veiði­gjöldin séu fyrst og fremst auka­skattur á lands­hluta, og sér í lagi lands­byggð­ina. Þetta er gjald sem leggst hvað þyngst á fyr­ir­tæki sem eru úti á land­i,“ sagði sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herr­ann. „Ég velti því fyrir mér, af hverju tökum við út eina at­vinnu­grein, sem er að nota auð­lindir lands­ins? Hvers vegna ­reiknum við ekki ein­hvers konar afnota­gjald á aðrar atvinnu­grein­ar líka sem eru að nýta auð­lindir lands­ins? Hvort sem það er nú raforka eða þess vegna loft­bylgj­ur, vatn, hvað sem er, ­ferða­þjón­usta þess vegna. Af hverju er ein grein tekin út?“ 

Oddný spurði Gunnar Braga einnig að því hvort til greina kæmi að bjóða við­bót­arafla­heim­ild­ir, sem útlit sé fyrir að Haf­rann­sókn­ar­stofnun leggi til í sum­ar, út til hæst­bjóð­anda. Þannig feng­ist reynsla á upp­boðs­að­ferð­ina. „Nei ég sé það ekki ger­ast að við förum með það á upp­boð.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None