Sigurður Ingi: „Framsóknarmenn hræðast ekki kosningar“

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir mik­il­vægt að það skýrist fyrr en seinna hvenær kosn­ingar verða. Hann segir að það stytt­ist í að hægt verði að greina frá kjör­degi, en gaf ekki skýr­ari svör en það, þegar hann svar­aði fyr­ir­spurn frá Stein­grími J. Sig­fús­syni, þing­manni VG, á Alþingi í dag. 

Margir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa und­an­farið stigið fram og sagt ýmist mis­ráðið eða óþarfa að ganga til kosn­inga í haust. Sig­urður Ingi hefur ekki verið í þeirra hópi, og hefur sagt að það standi til að efna lof­orðið um að kjósa í haust. „Fram­sókn­ar­menn treysta sér alveg til kosn­inga eins og hver annar stjórn­mála­flokk­ur,“ sagði Sig­urður Ingi á þingi í dag, og bætti því við að flokk­ur­inn hefði hafið sinn und­ir­bún­ing fyrir kosn­ing­arnar eins og aðrir flokk­ar. Hann sagði svo einnig: „Fram­sókn­ar­menn hræð­ist ekki kosn­ing­ar. Eftir það sem við höfum afrekað á þessu kjör­tíma­bili þorum við auð­vit­að að leggja þau verk okkar í dóm kjós­enda.“

Sig­urður Ingi tók undir það með Stein­grími að það væri nauð­syn­legt að kjör­dagur lægi fyrir með góðum fyr­ir­vara. Stein­grímur sagði meðal ann­ars nauð­syn­legt að gera breyt­ingar á lögum til þess að tryggja að Íslend­inga erlendis missi ekki kosn­inga­rétt sinn í stórum stíl. Hann minnt­ist einnig á að utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla eigi að hefj­ast átta vikum fyrir kosn­ing­ar, og ef kjósa eigi í októ­ber þurfi utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla að hefj­ast um miðjan ágúst. Þá verði líka að gefa flokk­um, bæði gömlum og nýj­um, tíma til að und­ir­búa kosn­ing­arn­ar. 

Auglýsing

Stein­grímur var ekki mjög sáttur við svör Sig­urðar Inga og sagði fram­sókn­ar­menn haga sér eins og „rjúpna­hópur sem vill fresta jól­unum til þess að fá að lifa í nokkrar vikur í við­bót.“ Það ætti að gefa út kjör­dag núna og ekki degi seinna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None