Davíð fær 80 prósent af launum forsætisráðherra í eftirlaun

Rúmlega 1,1 milljón króna af 3,3 milljóna króna mánaðarlaunum Davíðs Oddssonar eru eftirlaun vegna starfa hans sem forsætisráðherra. Hann segist ekki fá nema 70 þúsund eftir skatta í eftirlaun vegna starfa sem seðlabankastjóri.

Davíð Oddsson er í framboði til forseta Íslands. Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans mælist fylgi hans um 20 prósent.
Davíð Oddsson er í framboði til forseta Íslands. Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans mælist fylgi hans um 20 prósent.
Auglýsing

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, fær 80 pró­sent af ­launum for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun. Hann fær hærra hlut­fall af laun­um ­for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun en aðrir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herrar sem þeirra njóta sökum þess að hann sat mun lengur en þau á þeim stóli. Davíð segir að trölla­sögur um mikil við­bót­ar­eft­ir­laun hans vegna starfa fyrir Seðla­banka Ís­lands séu ekki sann­ar. Önnur eft­ir­laun hans lúti líf­eyr­is­reglum og hann fái ­sem dæmi um 70 þús­und krónur greiddar eftir skatta í líf­eyr­is­sjóðs­laun sem ­fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri. Þetta kemur fram í mynd­böndum sem fram­boð Dav­íðs, en hann sæk­ist eftir því að verða næsti for­seti Íslands, hefur hlaðið upp á Youtu­be. 

Sam­kvæmt tekju­blaði Frjálsrar versl­unar, sem gefið var út í júlí 2015, var Davíð með um 3,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­tekjur á árinu 2014. Þær greiðslur sam­an­standa af launum hans fyrir að rit­stýra Morg­un­blað­inu og ­eft­ir­launum hans. Sam­kvæmt úrskurði Kjara­ráðs frá því í nóv­em­ber 2015 eru laun ­for­sæt­is­ráð­herra 1.391 þús­und krónur og því fær Davíð 1.113 þús­und krónur í for­sæt­is­ráð­herra­eft­ir­laun.

Auglýsing

Í þeim mynd­böndum sem fram­boð Dav­íðs birt­ir, sem eru alls 30 tals­ins, svarar Davíð ýmsum spurn­ingum um atriði úr for­tíð­inni sem hann tel­ur að rangt sé farið með, sýn sína á for­seta­emb­ættið og hvað honum finn­ist um ýmsa hluti, til dæmis jafn­rétti kynj­anna.

Í einu mynd­band­inu segir Davíð að það hafi ver­ið ­þing­manna­nefnd, ekki hann sjálf­ur, sem hafi ákveðið að gera laga­breyt­ingu um eft­ir­laun ­þing­manna og ráð­herra. For­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafi notið þeirra hel­st, enda hafi lögin þýtt að laun þeirra hækk­uðu sam­stundis um 50 pró­sent. Aðrir for­sæt­is­ráð­herra sem nutu eft­ir­launa sam­kvæmt lög­unum hafi verið Þor­steinn Páls­son, Geir. H Haar­de, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Hall­dór Ásgríms­son, sem nú er lát­inn. 

Þau fengu öll greidd 70 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra hverju sinni, en Davíð 80 pró­sent sökum þess hversu lengi hann sat á þeim stóli. Í lok eins mynd­bands­ins segir Davíð að ein­hvern tím­ann verði sú saga sögð hver að­drag­and­inn af því að lögin voru sett var. Sú saga er þó ekki sögð í umrædd­um ­mynd­bönd­um.

Eft­ir­launa­lögin umdeildu, sem hækk­uðu eft­ir­laun fyrr­ver­and­i ráð­herra og þing­manna umtals­vert, voru sett árið 2003. Þau voru afnumin í mar­s 2009. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None