Stuðningur við forsetaframbjóðendur nær jafnvægi

Guðni Th. Jóhannesson nýtur stuðnings 60 prósent kjósenda í nýrri kosningaspá. Fylgi við frambjóðendur helst nokkuð stöðugt síðan kosningaspáin var gerð síðast fyrir helgi.

Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason ræða saman fyrir kosningafund í Háskólanum í Reykjavík á dögunum.
Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason ræða saman fyrir kosningafund í Háskólanum í Reykjavík á dögunum.
Auglýsing

Ný kosn­inga­spá sýnir litlar breyt­ingar á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda und­an­farna daga og svo virð­ist sem að það sé að ná jafn­vægi eftir rót síð­ustu viku. Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ing­ur, er enn sá fram­bjóð­andi sem flestum hugn­ast og hlyti hann 60,4 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú, sam­kvæmt kosn­inga­spánni sem gerð var í dag. Kosið verður 25. júní.

Fylgi Guðna er nán­ast það sama og það mæld­ist fyrir fjórum dögum síðan þegar það var 60,3 pró­sent. Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, nýtur stuðn­ings 20,1 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Hann stendur einnig í stað síðan síð­ast, þegar stuðn­ingur við hann mæld­ist 20,3 pró­sent.

Auglýsing

Sömu sögu er að segja um Andra Snæ Magna­son, rit­höf­und, og Höllu Tóm­as­dótt­ur, athafna­konu. Þau mæl­ast með nán­ast sama stuðn­ing og fyrir fjórum dög­um. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mælist Andri Snær með 11,5 pró­sent fylgi og Halla með 4,2 pró­sent.

Aðrir fram­bjóð­endur mundu hljóta minna en eitt pró­sent atkvæða að Sturlu Jóns­syni und­an­skild­um. Hann nýtur stuðn­ings 1,4 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Aðrir fram­bjóð­endur eru Ást­þór Magn­ús­son, Elísa­bet Jök­uls­dótt­ir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Guð­rún Mar­grét Páls­dótt­ir.

Kosn­­­­inga­­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­­seta­­kosn­­ing­­ar. Kjarn­inn hefur áður birt nið­­ur­­stöður kosn­­inga­­spálík­­ans­ins fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar 2014 fyrir fylgi fram­­boða í Reykja­vík. Þá verða nið­­ur­­stöður lík­­ans­ins um fylgi stjórn­­­mála­­flokka í fyr­ir­hug­uðum alþing­is­­kosn­­ingum birtar á vef Kjarn­ans í aðdrag­anda kosn­­ing­anna í haust. Í nýj­­­­ustu kosn­­­­inga­­­­spánni fyrir for­­seta­­kosn­­ing­­arnar eru nýj­­­­ustu kann­an­­­­irnar vegn­­­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 30. maí (vægi 16,2%)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 20. til 27. maí (vægi 15,5%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 14,2%)
  • Skoð­ana­könnun Fré­lags­vís­inda­­stofn­unar HÍ fyrir stuðn­­ings­­menn Guðna Th. Jóhann­es­­sonar 23. til 25. maí (vægi 21,2%)
  • Skoð­ana­könnun Gallup fyrir stuðn­­ings­­menn Dav­­íðs Odds­­sonar 19. til 25. maí (vægi 17,5%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 12. til 20. maí (vægi 15,4%)

Hvað er kosn­­­inga­­­spá­in?

Kosn­­­­inga­­­­spálíkan Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­lýs­ing­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­inga­­­­spá Bald­­­­urs fyrir sveit­­­­ar­­­­stjórn­­­­­­­ar­­­­kosn­­­­ing­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­inga­­­­spá.is má lesa nið­­­­ur­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­leiki könn­un­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­inga­úr­slit­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None