Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni - Hefur skýrsla um Costco áhrif á Haga?

Umfjöllun um skýrslu sem þykir renna stoðu undir það, að innkoma Costco hafi mikil áhrif á smásölumarkað hér á landi, hefur verið mikil á sama tíma og markaðsvirði Haga hefur fallið töluvert.

kauphoell.jpg
Auglýsing

Öll félögin í kaup­höll­inni, fyrir utan og HB Granda og N1, lækk­uðu í kaup­höll­inn í dag. Mesta lækk­unin var hjá Icelanda­ir, um tæp­lega þrjú pró­sent, í rúm­lega eins millj­arðs króna við­skipt­um. Gengi HB Granda og N1 hækk­uðu um innan við eitt pró­sent.

Þá lækk­aði gengi Haga um 2,1 pró­sent, en gengi bréfa félags­ins hefur lækkað tölu­vert frá því í síð­ustu viku. Fyrir tæp­lega viku greindu fjöl­miðlar frá skýrslu ráð­gjafa- og hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Zenter, þar sem segir að inn­koma Costco á íslenskan mark­að, í um 14 þús­und fer­metra hús­næði við Kaup­tún, geti hafa mikil áhrif á smá­sölu­mark­að­inn, en þar er Hagar lang­sam­lega stærsta fyr­ir­tæk­ið. Það rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bón­uss og Hag­kaupa. Heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra námu 78,3 millj­örðum í fyrra.

Már Wolf­gang Mixa hag­fræð­ing­ur, sem vann að skýrsl­unni með Zenter, segir að áhrif komu Costco verði jafn­vel­meiri á inn­flytj­endur og heild­sala en á aðrar smá­sölu­versl­an­ir. „Í krafti stærðar sinnar getur Costco boðið upp á ýmsar vör­ur, þar á meðal þekkt vöru­merki, á mun lægra verði en íslenskir neyt­endur hafa mátt venj­ast hingað til. Ég sé fyrir mér að margir inn­flytj­end­ur, sem hafa verið með þekkt umboð í lengri tíma, muni finna fyrir komu versl­un­ar­innar hing­að,“ sagði Már í sam­tali við Við­skipta­blaðið á fimmtu­dag­inn.

Auglýsing

Breytingar á gengi Haga má sjá hér, eins og þær birtust á vef Keldunnar.

Gengi bréfa Haga hefur fallið úr 49 í 44 á und­an­far­inni viku, eða frá því fyrst var greint frá efni skýrsl­unn­ar. Mark­aðsvirði Haga hefur lækkað um rúm­lega tíu pró­sent á und­an­förnum mán­uði, og hefur lækk­unin að mestu komið til á und­an­förnum dög­um. Viku­lækk­unin nemur 9,18 pró­sent­um. Virði félags­ins er nú rúm­lega 51 millj­arður króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Keld­unn­ar.

Upp­fært 23:31: Síð­ast­lið­inn föstu­dag var ákveðið að greiða út arð úr Hög­um, sem nemur 1,7 krónum á hlut, eða um 1,9 millj­örðum króna. Þessi ákvörðun aðal­fundar skýrir að ein­hverju leyti lækkun á gengi bréfa félags­ins, þó þau hafi einni lækkað í aðdrag­anda fund­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None