Sala á íslensku neftóbaki, sem oft er kallað „Ruddi“ jókst enn á ný á síðasta ári. Þá var selt magn neftóbaks hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) 36,1 tonn, sem er tíu prósent meira en seldist á árinu 2014. ÁTVR hefur aldrei selt jafn mikið af neftóbaki og fyrirtækið gerði í fyrra. Þetta kemur fram í ársskýrslu fyrirtækisins sem birt var nýverið.
Frá árinu 2006, þegar ársneysla Íslendinga á neftóbaki var 14,4 tonn, hefur salan 2,5faldast. Þegar farið er lengra aftur í tímann, til ársins 2002, kemur í ljós að salan hefur hátt í fjórfaldast. Ástæðan er fyrst og síðast stóraukin notkun ungra karlmanna á „Ruddanum“ sem munntóbaki.
Neftóbakssalan er arðbær. Hún skilaði ÁTVR alls 748 milljónum króna í kassann í fyrra án virðisaukaskatts. Það er um 55 milljónum krónum meira en salan skilaði fyrirtækinu árið áður. Tekjurnar hafa alls aukist um 30 prósent á tveimur árum.
Einokun árum saman
Árið 1996 var fínkornað munn- og neftóbak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að neftóbakið sem ÁTVR framleiðir hefur verið í nánast einokunarstöðu á markaðnum síðan lögin voru sett. Samhliða hefur neysla á munntóbaki aukist töluvert og þeir sem neyta þess kaupa annaðhvort smyglvarning á svörtum markaði, þar sem er mikið framboð, eða nota neftóbakið sem ÁTVR framleiðir, hinn svokallaða „Rudda“, sem munntóbak. Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opinbera svo um munar, bæði vegna hækkunar á tóbaksgjaldi og stóraukinnar eftirspurnar. Tóbaksgjald á neftóbak hækkaði til að mynda um 100 prósent 1. janúar 2013.
Siðferðisleg spurning hvenær neftóbak er munntóbak
Í inngangi ársskýrslu ÁTVR fyrir árið 2014, fjallaði Ívar J. Arndal, forstjóri fyrirtækisins, um áhyggjur sínar af aukinni neftóbaksneyslu. Þar sagði Ívar: „Kannanir sýna að neyslan á neftóbaki hefur færst í munn og nú er svo komið að yfirgnæfandi hluti neftóbaksins er notaður í munn. Nýir notendur eru helst ungir karlmenn. Samkvæmt lögum er sala munntóbaks ólögleg á Íslandi. Það er siðferðileg spurning hvenær íslenska neftóbakið, sem búið er að framleiða eftir sömu uppskrift frá því fyrir stríð, er raunverulega orðið að munntóbaki og þar með ólöglegt. Í dag er íslenska neftóbakið sem ÁTVR framleiðir eina reyklausa tóbakið á markaðinum. Engin formleg skilgreining er til á því hvaða eðlisþættir það eru sem greina á milli neftóbaks og munntóbaks. ÁTVR hefur vakið athygli heilbrigðisyfirvalda á málinu en ljóst er að neysluaukningin á neftóbakinu er slæm og nauðsynlegt að sporna við þróuninni.“