Neytendasamtökin efast um að einkavæðing sé góð fyrir neytendur

Samkeppniseftirlitið og Neytendasamtökin bregðast við nýrri skoðun Viðskiptaráðs.

almenningur.jpg
Auglýsing

Neyt­enda­sam­tökin efast um að það gagn­ist neyt­endum að einka­væða opin­bera atvinnu­starf­semi eða að stjórn­völd bjóði út þjón­ustu­samn­inga nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fell­um. Sam­keppn­is­eft­ir­litið vill að stjórn­völd taki upp svo­kallað sam­keppn­is­mat og það telur að það sé sam­eig­in­legt verk­efni atvinnu­lífs og stjórn­valda að búa í hag­inn fyrir virka sam­keppni á sem flestum svið­um. Þetta kemur fram í svörum við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í tengslum við skoðun Við­skipta­ráðs.

„Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki talað fyrir slíkri einka­væð­ingu né gerð þjón­ustu­samn­inga sem þarna er lagt til og hafa efa­semdir um að það myndi gagn­ast neyt­endum nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vik­um,“ segir Jóhannes Gunn­ars­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna. Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki fjallað form­lega um þá skoðun sem kemur fram hjá Við­skipta­ráð­i. 

Í skoð­un­inni hvetur Við­skipta­ráð stjórn­völd meðal ann­ars að hætta í hefð­bundnum atvinnu­rekstri. Það leggur til að veita fleiri þjón­ustu­samn­inga og telur að ríkið eigi ekki að vera í tekju­auk­andi starf­semi. Í þriðja lagi gagn­rýnir Við­­skipta­ráð hefð­bund­inn sam­keppn­is­­rekstur á vegum hins opin­ber­a. 

Auglýsing

Það verður að skoða hvert skref vand­lega

„Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki talað fyrir slíkri einka­væð­ingu né gerð þjón­ustu­samn­inga sem þarna er lagt til og hafa efa­semdir um að það myndi gagn­ast neyt­endum nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vik­um,“ segir Jóhann­es. Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki fjallað form­lega um þá skoðun sem kemur fram hjá Við­skipta­ráð­i. 

Jóhannes GunnarssonJóhannes segir þó að nauð­syn­legt sé að skoða hvert skref vand­lega áður en ákveðið er að einka­væða eða gera í rík­ari mæli þjón­ustu­samn­inga og að metið sé hvaða afleið­ingar það hafi; hvort almenn­ingur hagn­ist eða ekki. 

Er þátt­takan nauð­syn­leg?

Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að það sé full ástæða fyrir stjórn­völd að huga vel að því hvort og hvernig þau koma að sam­keppn­is­rekstri. „Þótt sam­keppn­is­lögin úti­loki ekki þátt­töku stjórn­valda í sam­keppn­is­rekstri er mik­il­vægt að þau meti í hverju til­viki hvort þátt­takan er nauð­syn­leg og taki ákvarð­anir út frá því. Ef þátt­takan er nauð­syn­leg verður að gera þá kröfu að stjórn­völd raski ekki sam­keppni á við­kom­andi mark­að­i,“ segir hann í svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Páll Gunnar PálssonHann segir að í sam­keppn­is­lögum sé til dæmis að finna heim­ild handa Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu til þess að mæla fyrir um fjár­hags­legan aðskilnað milli ann­ars vegar opin­berrar starf­semi og hins vegar starf­semi sem er í beinni sam­keppni við fyr­ir­tæki á frjálsum mark­aði. Rík­is­styrkja­reglum EES-­samn­ings­ins sé einnig ætlað að vernda sam­bæri­lega hags­muni. Í ýmsum öðrum til­vikum séu mögu­leikar sam­keppn­is­yf­ir­valda til íhlut­unar óljós­ari.

Vill fá sam­keppn­is­mat

Páll Gunnar segir að sam­keppn­is­efti­ritið hafi lengi talað fyrir því að stjórn­völd taki upp svo­kallað sam­keppn­is­mat þegar lög og reglur eru und­ir­bún­ar. Slíkt mat eigi líka vel við þegar stjórn­völd ákveða þátt­töku í atvinnu­rekstri. Sam­keppn­is­mat sé ein­falt mat á því hvort við­kom­andi ráð­stöfun er til þess fallin að skaða sam­keppni. Ef svarið er já beri að leita leiða að settu mark­miði sem síst skaðar sam­keppni.

Hann segir enn fremur að það sé sam­eig­in­legt verk­efni atvinnu­lífs og stjórn­valda að búa í hag­inn fyrir virka sam­keppni á sem flestum svið­um. Stjórn­völd eigi að gera það með því að huga vel að því hvernig þau hafa áhrif á sam­keppni í gegnum lög, reglur og þátt­töku í atvinnu­rekstri. Atvinnu­lífið eigi að gera það með því að fara að sam­keppnilög­um, s.s. bann­inu við ólög­mætu sam­ráði og mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None