Meirihluti mundi vilja rafrænar kosningar – Ótímabært segir Pírati

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Mik­ill meiri­hluti myndi kjósa raf­rænt í kosn­ingum um for­seta Íslands ef það væri í boði eða 79,7 pró­sent þeirra sem taka afstöðu í könnun Fréttal­baðs­ins sem gerð var á mánu­dag­inn. Frá þessu er greint í blað­inu í dag. Nokkur munur er á svörum yngra fólks og eldra.

Tæp­lega 90 pró­sent þeirra svar­enda sem eru á aldr­inum 18 til 49 ára myndu kjósa með raf­rænum hætti miðað við tæp­lega 70 pró­sent þeirra sem eru eldri en 50 ára, sam­kvæmt könn­un­inni.

Píratar hafa talað fyrir auk­inni raf­rænni þátt­töku almenn­ings í ákvörð­unum stjórn­valda. Til­raunir með þetta eru þegar hafnar í kosn­ingum um ákvarð­anir ein­stakra flokka. Þannig hefur for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar verið kos­inn í raf­rænni kosn­ingu á lands­fundi flokks­ins und­an­farin ár og á aðal­fundi Pírata sem fram fór á dög­unum var kosið um ein­staka mál á raf­rænan hátt.

Auglýsing

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir hins vegar ótíma­bært að kjósa um mik­il­væg mál eins og í for­seta­kjöri á raf­rænan hátt. Til þess sé tæknin ekki orðin nógu öflug og of margir óvissu­þættir ríki enn um það hvernig kjós­andi hegðar sér í slíkri kosn­ingu. Ákvörðun um fókn­ari mál eigi því enn heima í kjör­klef­an­um. 

„Ein­falt dæmi sem varðar kosn­inga­leynd í inter­net­kosn­ingum er að þú getur ekki treyst því að kjós­and­inn sé einn þegar hann situr fyrir fram tölv­una,“ er haft eftir Helga Hrafni í Frétta­blað­inu. „Og þá þarf að vega og meta hvað er heppi­legt og við hvaða aðstæð­ur.“

„Málið snýst ekki bara um að skrifa eitt­hvað for­rit og skella því á netið og þá er komið eitt­hvað raf­rænt lýð­ræði. Þetta er miklu flókn­ara en það,“ er haft eftir Helga Hrafni.

Heim­ild er í sveit­ar­stjórn­ar­lögum um raf­rænar íbúa­kosn­ingar sem hefur verið notuð tvisvar; einu sinni í Ölf­usi 2015 þar sem kann­aður var vilji íbúa um sveit­ar­fé­lags­ins við önnur sveit­ar­fé­lög og eitt sinn í Reykja­nesbæ sama ár þar sem greidd voru atkvæði um breyt­ingar á deiliskipu­lagi í Helgu­vík vegna upp­bygg­ingar kís­il­vers þar.

Hlut­fall þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar í könnun Frétta­blaðs­ins var 93,2 pró­sent. Haft var sam­band við 926 manns og náð­ist í 802 í könn­un­inni og svar­hlut­fallið því 86,6 pró­sent. Spurn­ing­inn hljóð­aði svo: „Myndir þú kjósa for­seta Íslands með raf­rænum hætti, væri sá mögu­leiki til stað­ar­?“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None