Ríkissjóður Íslands hefur í dag greitt upp skuldabréf sem gefin voru út árið 2011 og voru á gjalddaga í dag. Eftirstöðvar skuldabréfanna námu 503 milljónum Bandaríkjadala eða um 62 milljörðum króna. Bréfin verða greidd af gjaldeyrisinnstæðum ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands, að því er segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Útgáfan árið 2011 var fyrsta útgáfa ríkissjóðs á alþjóðamarkaði eftir fjármálahrunið. Heildarnafnverð útgáfunnar nam á sínum tíma einum milljarði Bandaríkjadala. Á síðasta ári leysti ríkissjóður til sín um helming af útistandandi bréfum og voru uppkaupin liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. Skuldabréfin voru gefin út til 5 ára og báru 4,875% fasta vexti sem samsvaraði 3,2% álagi á vexti á millibankamarkaði.
„Í fjárlögum ársins 2016 var gert ráð fyrir endurfjármögnun lánsins ef markaðsaðstæður væru hagstæðar. Ríkissjóður kann að skoða endurfjármögnun síðar á árinu ef þörf verður á að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands frekar, en erlend lán ríkissjóðs eru tekin til þess að fjármagna gjaldeyrisforðann,“ segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahgsráðuneytinu.
Heildarskuldir ríkissjóðs nema eftir uppgreiðsluna 1.252 milljörðum króna og þar af nema erlendar skuldir 230 milljörðum króna. Erlendar skuldir samanstanda af tveimur markaðsútgáfum, annarri í Bandaríkjadölum frá árinu 2012 og nema eftirstöðvar 1 milljarði Bandaríkjadala, og hinni í evrum frá árinu 2014, alls að fjárhæð 750 milljónir evra.