Þurfa 2,4% af Guðna á dag til að vinna

Guðni Th. Jóhannesson nýtur stuðnings meira en helmings kjósenda í embætti forseta Íslands, samkvæmt kosningaspánni.

Guðni Th. Jóhannesson mælist með mest fylgi allra frambjóðenda.
Guðni Th. Jóhannesson mælist með mest fylgi allra frambjóðenda.
Auglýsing

Ætli Davíð Odds­son, Andri Snær Magna­son eða Halla Tóm­as­dóttir að vinna Guðna Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ing, í for­seta­kosn­ing­unum þurfa að minnsta kosti 2,4 pró­sentu­stig af fylgi Guðna að flytj­ast til ann­ars fram­bjóð­anda á dag fram til kosn­inga eftir átta daga. Guðni hefur tapað 60,4 pró­sent stuðn­ingi niður í 53,4 pró­sent síðan um mán­að­ar­mót.

Ef Guðni tapar 2,4% til annað hvort Davíðs, Andra eða Höllu á dag fram að kosningum.Á mynd­inni hér að ofan hefur þessi sviðs­mynd verið sett fram til útskýr­ing­ar. Miðað við þá þróun sem hefur orðið á fylgi fram­bjóð­enda í kosn­inga­spánni verður að telj­ast ólík­legt að þetta verði raun­in.

Aðeins fimm pró­sentu­stig skilja að for­seta­fram­bjóð­end­urna Davíð Odds­son, Andra Snæ Magna­son og Höllu Tóm­as­dóttur í kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­son­ar. Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur ennþá stuðn­ings meira en helm­ings kjós­enda sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni en tapar fylgi síðan síð­ast.

Bæði Guðni og Davíð tapa tveimur til þremur pró­sentu­stigum milli þess sem kosn­inga­spáin var gerð í síð­ustu tvö skipti; 14. júní og 16. júní. Bæði Andri Snær og Halla virð­ast vera að sækja þennan stuðn­ing af Guðna og Dav­íð. Kosið verður 25. júní.

Auglýsing

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, mælist nú með 16,2 pró­sent fylgi og fellur úr 18 pró­sent­unum sem hann hafði síð­ast þegar kosn­inga­spáin var gerð. Andri Snær Magna­son, rit­höf­und­ur, er nú með 13,6 pró­sent fylgi, það mesta sem hann hefur mælst með síðan kosn­inga­spáin var gerð fyrst fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 13. maí. Halla Tóm­as­dótt­ir, athafna­kona, hefur jafn­framt ekki mælst með jafn mikið fylgi. Hún nýtur nú stuðn­ings 11,8 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Til sam­an­burðar var hún aðeins með 2 pró­sent 13. maí.

Sturla Jóns­son, bíl­stjóri, mælist enn með meira en tvö pró­sent fylgi og fengi 2,5 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Ást­þór Magn­ús­son fengi eitt pró­sent, Elísa­bet Jök­uls­dóttir fengi 0,9 pró­sent, Guð­rún Mar­grét Páls­dóttir fengi 0,4 pró­sent og Hildur Þórð­ar­dóttir fengi 0,2 pró­sent.

Kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar í ár. Í nýj­ustu kosn­ings­pánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­ustu kann­an­irnar vegn­ar:

  • Skoð­ana­könnun Gallup 8. – 15. júní (vægi 47,5%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 13. júní (væg: 23,4%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­ind­ast. HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. – 12. júní (vægi 29,1%)

Hvað er kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Kosn­­­­­inga­­­­­spálíkan Bald­­­­­urs Héð­ins­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­lýs­ing­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­inga­­­­­spá Bald­­­­­urs fyrir sveit­­­­­ar­­­­­stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­kosn­­­­­ing­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­inga­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­ur­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­leiki könn­un­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­inga­úr­slit­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None