Mynd: Bára Huld Beck

Lokaspá: Líkur frambjóðenda á að komast inn á Alþingi

Kjarninn birtir síðustu þingmannaspá sína í aðdraganda kosninga. Ljóst er að margir frambjóðendur eiga fyrir höndum langar nætur til að sjá hvort þeir nái inn eða ekki og töluverðar sviptingar hafa orðið á líkum ýmissa frá byrjun viku. Á meðal þeirra sem eru í hættu að komast ekki inn eru sitjandi þingmenn og tveir leiðtogar.

Kjarn­inn og Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tví­vegis fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og 2020, og þing­kosn­ingar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdrag­anda kosn­inga 2021, í sjö­unda sinn.

Sam­hliða er keyrð þing­sæta­spá sem byggir á reikni­lík­ani Bald­urs. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var í gær­morg­un, 15. sept­em­ber. ­Reikni­líkanið úthlutar svo kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­un­um. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Auglýsing

Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slit­um. Sögu­leg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæm­um. Frá­vikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæm­um.

Norðausturkjördæmi
10 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • >99%
    Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • 87%
    Líneik Anna Sævarsdóttir
  • 24%
    Þórarinn Ingi Pétusson
  • 58%
    Eiríkur Björn Björgvinsson
  • 4%
    Sigríður Ólafsdóttir
  • >99%
    Njáll Trausti Friðbertsson
  • 82%
    Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • 23%
    Berglind Harpa Svavarsdóttir
  • 41%
    Jakob Frímann Magnússon
  • 47%
    Haraldur Ingi Haraldsson
  • 3%
    Margrét Pétursdóttir
  • 70%
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
  • 11%
    Anna Kolbrún Árnadóttir
  • 71%
    Einar Brynjólfsson
  • 11%
    Hrafndís Bára Einarsdóttir
  • 93%
    Logi Már Einarsson
  • 37%
    Hilda Jana Gísladóttir
  • 2%
    Eydís Ásbjörnsdóttir
  • 93%
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
  • 38%
    Jódís Skúladóttir
  • 3%
    Óli Halldórsson

Í Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi eru tíu þing­­sæti í boði. Þeir tíu fram­­bjóð­endur sem eru með mestar líkur á að ná þeim mæl­­ast með 47 til næstum 100 pró­­sent líkur á því að ná kjöri. Af þeim mæl­ast átta á bil­inu 70 til næstum 100 pró­sent. Sá fram­­bjóð­andi sem mælist með mestar líkur á að ná inn fyrir utan þann hóp er Jakob Frí­mann Magn­ús­son, odd­viti Flokks fólks­ins, með 41 pró­sent lík­ur.

Fast á hæla hans koma Jódís Skúla­dótt­ir, sem situr í öðru sæti hjá Vinstri græn­um, með 38 pró­sent og  Hilda Jana Gísla­dótt­ir, sem situr í öðru sæti á lista Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, með 37 pró­­sent.

Miklar svipt­ingar eru á líkum fram­bjóð­enda á að ná inn frá síð­ustu þing­manna­spá. Líkur Líneikar Önnu Sæv­ars­dótt­ur, sitj­andi þing­manns sem er í öðru sæti hjá Fram­sókn, þjóta upp úr 56 í 87 pró­sent. Líkur Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­manns Mið­flokks­ins, á að ná inn aukast sömu­leiðis úr 60 í 70 pró­sent. Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, sem er sitj­andi þing­maður flokks­ins, á þó ein­ungis 11 pró­sent líkur á að halda því sæt­i. 

Þeir sem tapa á milli spáa í kjör­dæm­inu eru Har­aldur Ingi Har­alds­son frá Sós­í­alista­flokki, sem fer úr 62 í 47 pró­sent lík­ur, Einar Brynj­ólfs­son, odd­viti Pírata sem mælist nú með 70 pró­sent líkur á að ná inn en var með 84 pró­sent í byrjun viku, og Eiríkur Björn Björg­vins­son, odd­viti Við­reisn­ar, sem dalar niður í 58 pró­sent lík­ur.

Auglýsing
Norðvesturkjördæmi
8 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • >99%
    Stefán Vagn Stefánsson
  • 65%
    Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
  • 20%
    Halla Signý Kristjánsdóttir
  • 40%
    Guðmundur Gunnarsson
  • 1%
    Bjarney Bjarnadóttir
  • >99%
    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
  • 92%
    Haraldur Benediktsson
  • 30%
    Teitur Björn Einarsson
  • 47%
    Eyjólfur Ármansson
  • 29%
    Helga Thorberg
  • 57%
    Bergþór Ólason
  • 3%
    Sigurður Páll Jónsson
  • 83%
    Magnús Norðdahl
  • 2%
    Gunnar Ingiberg Guðmundsson
  • 93%
    Valgarður Lyngdal Jónsson
  • 37%
    Jónína Björg Magnúsdóttir
  • 79%
    Bjarni Jónsson
  • 9%
    Lilja Rafney Magnúsdóttir

Líkur á því að annar þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks, Lilja Rann­veig Sig­­urð­­ar­dótt­ir, nái þing­sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi stór­aukast á milli spáa og fara úr 44 í 64 pró­sent. Odd­viti Sós­í­a­lista­­flokks, Helga J. Thor­berg, fer í hina átt­ina en lík­urnar hennar lækka úr 45 í 29 pró­sent. 

Eyjólfur Ármanns­­son, odd­viti flokks fólks­ins, hefur bætt mark­tækt við sig líkum í öllum gerðum spám og mælist nú með 47 pró­sent. Það er hins vegar á brattan að sækja fyrir Lilju Raf­­­ney Magn­ús­dótt­­ur, sitj­andi þing­­manni Vinstri grænna í kjör­­dæm­inu, en lík­­­urnar á því að hún nái inn eru ein­ungis níu pró­­sent. 

Sex fram­­bjóð­endur í kjör­­dæm­inu mæl­­ast með 65 til næstum 100 pró­­sent líkur á að ná kjöri, en alls eru átta þing­­sæti í boði í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi. Næstu fjórir fram­­bjóð­endur mæl­­ast svo með 37-57 pró­­sent líkur til að ná þeim tveimur þing­sætum sem þá stæðu eft­ir.

Reykjavíkurkjördæmi norður
11 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 72%
    Ásmundur Einar Daðason
  • 11%
    Brynja Dan Gunnarsdóttir
  • 93%
    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
  • 39%
    Jón Steindór Valdimarsson
  • 3%
    Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir
  • >99%
    Guðlaugur Þór Þórðarson
  • 94%
    Diljá Mist Einarsdóttir
  • 46%
    Brynjar Níelsson
  • >99%
    Kjartan Magnússon
  • 44%
    Tómas A. Tómasson
  • 69%
    Kolbrún Baldursdóttir
  • 46%
    Gunnar Smári Egilsson
  • 5%
    Laufey Líndal Ólafsdóttir
  • 22%
    Vilborg Þóranna Bergmann Kristjánsdóttir
  • 1%
    Tómas Ellert Tómasson
  • 98%
    Halldóra Mogensen
  • 70%
    Andrés Ingi Jónsson
  • 13%
    Lenya Rún Taha Karim
  • >99%
    Helga Vala Helgadóttir
  • 83%
    Jóhann Páll Jóhannsson
  • 22%
    Dagbjört Hákonardóttir
  • 91%
    Katrín Jakobsdóttir
  • 35%
    Steinunn Þóra Árnadóttir
  • 2%
    Eva Dögg Davíðsdóttir

Í því kjör­­dæmi Reykja­víkur sem liggur norðan Vest­­ur­lands­­veg­­ar, Miklu­brautar og Hring­brautar eru tölu­verðar svipt­ingar frá því að þing­manna­spáin var tekin saman síð­ast. Gunnar Smári Egils­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands lækkar veru­lega frá því í byrjun viku þegar lík­urnar á því að hann næði á þing mæld­ust 65 pró­sent. Þær eru nú undir helm­ings­lík­um, eða 46 pró­sent. Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, sitj­andi þing­maður Vinstri grænna, er einnig í mik­illi fall­hættu en ein­ungis 34 pró­sent líkur eru á því að hún nái inn að óbreytt­u. 

Ásmundur Einar Daða­son, ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokkn­um, stendur í stað milli spáa og mælist með 72 pró­sent líkur á að hljóta þing­sæti. Það ætti að duga honum inn. 

Brynjar Níels­son hress­ist á milli spáa og mælist með 46 pró­sent lík­ur, eða þær sömu og Gunnar Smári, á að kom­ast inn. Þeir eru nú senni­leg­astir til að setj­ast í síð­ustu tvö þing­sæti kjör­dæm­is­ins. Stutt er þó í Tómas A. Tóm­as­son, odd­vita Flokks fólks­ins, sem mælist með 44 pró­sent lík­ur, og Jón Stein­dór Valdi­mars­son, sitj­andi þing­mann Við­reisn­ar, sem mælist með 39 pró­sent lík­ur.

Þeir tíu þing­­menn sem mæl­­ast með mestar líkur mæl­­ast með 70 til næstum 100 pró­­sent líkur á að ná inn. Neðstur í þeim hóp eru Jóhann Páll Jóhanns­­son, sem situr í öðru sæti hjá Sam­­fylk­ing­unni, en líkur hans á að ná þing­­sæti aukast í 83 pró­­sent. 

Lokaniðurstöður kosningaspárinnar 25. september 2021
Reykjavíkurkjördæmi suður
11 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 78%
    Lilja Dögg Alfreðsdóttir
  • 15%
    Aðalsteinn Haukur Sverrisson
  • 96%
    Hanna Katrín Friðriksson
  • 52%
    Daði Már Kristófersson
  • 5%
    María Rut Kristinsdóttir
  • >99%
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  • 94%
    Hildur Sverrisdóttir
  • 45%
    Birgir Ármannsson
  • 35%
    Friðjón R. Friðjónsson
  • 47%
    Inga Sæland
  • 5%
    Wilhelm Wessman
  • 52%
    katrín Baldursdóttir
  • 7%
    Símon Vestarr
  • 30%
    Fjóla Hrund Björnsdóttir
  • 2%
    Danith Chan
  • 95%
    Björn Leví Gunnarsson
  • 53%
    Arndís Anna Gunnarsdóttir
  • 6%
    Halldór Auðar Svansson
  • 98%
    Kristrún Frostadóttir
  • 60%
    Rósa Björk Brynjólfsdóttir
  • 8%
    Viðar Eggertsson
  • 94%
    Svandís Svavarsdóttir
  • 47%
    Orri Páll Jóhannsson
  • 4%
    Daníel E. Arnarson

Í Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæmi suður eru ekki síður vend­ing­ar og spenna Daði Már Krist­ó­­fer­s­­son, vara­­for­­maður Við­reisnar og annar maður á lista þess flokks í kjör­­dæm­inu, mælist með 52 pró­sent líkur á að kom­ast inn. Það er sama hlut­fall og Katrín Bald­urs­dótt­ir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, mælist með í kjör­dæm­inu en þau eru lík­leg­ust til að taka tvö síð­ustu af ell­efu þing­sætum kjör­dæm­is­ins. Rétt fyrir ofan þau, með nán­ast sömu líkur (53 pró­sent), er Arn­dís Anna Gunn­ars­dótt­ir, annar maður á lista Pírata, og rétt fyrir neðan eru Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, og Orri Páll Jóhanns­son, annar maður á lista Vinstri grænna, með 47 pró­sent lík­ur. Skammt á eftir þeim kemur svo mað­ur­inn sem hefur gert óvissu um þing­sæti á kosn­inga­nótt að lífstíl: Birgir Ármanns­son, fjórði maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks.

Fjóla Hrund Björns­dótt­ir, odd­viti Mið­­flokks­ins, dalar á milli spáa og mælist nú ólík­leg inn með 30 pró­sent lík­ur. 

Þeir átta fram­­bjóð­endur sem mæl­­ast með mestar líkur á að ná inn á þing í kjör­­dæm­inu mæl­­ast með 60 til næstum 100 pró­­sent lík­­­ur. Minnstar eru líkur Rósu Bjarkar Brynj­­ólfs­dótt­­ur, sem situr í öðru sæti á lista Sam­­fylk­ing­­ar­innar (60 pró­­sent), og Lilju Alfreðs­dótt­ur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins (72 pró­sent).

Suðurkjördæmi
10 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • >99%
    Sigurður Ingi Jóhannsson
  • 87%
    Jóhann Friðrik Friðriksson
  • 23%
    Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
  • 64%
    Guðbrandur Einarsson
  • 5%
    Þórunn Wolfram Pétursdóttir
  • >99%
    Guðrún Hafsteinsdóttir
  • 94%
    Vilhjálmur Árnason
  • 46%
    Ásmundur Friðriksson
  • 5%
    Björgvin Jóhannesson
  • 66%
    Ásthildur Lóa Þórsdóttir
  • 9%
    Georg Eiður Arnarson
  • 44%
    Guðmundur Auðunsson
  • 3%
    Birna Eik Benediktsdóttir
  • 58%
    Birgir Þórarinsson
  • 6%
    Erna Bjarnadóttir
  • 70%
    Álfheiður Eymarsdóttir
  • 11%
    Linda Völundardóttir
  • 86%
    Oddný G. Harðardóttir
  • 24%
    Viktor Stefán Pálsson
  • 79%
    Hólmfríður Árnadóttir
  • 16%
    Heiða Guðný Ásgeirs­dótt­ir

Í Suð­­ur­­kjör­­dæmi eru tíu þing­­sæti í boði. Sex fram­­bjóð­endur mæl­­ast með 79 til næstum 100 pró­­sent líkur á að ná inn miðað við nýj­­ustu kosn­­inga­­spá Kjarn­ans en þar á eftir er nokkuð jafn­­ræði með nokkrum fram­­bjóð­end­­um. 

Álf­heiður Eymars­dótt­ir, odd­viti Pírata, mælist svo með 70 pró­sent lík­ur, en skammt á hæla hennar kemur Ást­hildur Lóa Þór­s­dótt­ir, odd­viti Flokks fólks­ins, en líkur hennar hafa farið úr 41 í 66 pró­­sent á tveimur vik­um. Líkur Álf­heiðar lækka skarpt á milli spáa, fara úr 83 í 70 pró­sent.

Odd­viti Við­reisn­­­ar, Guð­brandur Ein­­ar­s­­son, mælist með 64 pró­­sent lík­­ur og sem stendur eru mestar líkur á að Birgir Þór­ar­ins­son, sitj­andi þing­maður og odd­viti Mið­flokks­ins, hreppi tíunda og síð­asta þing­sæti kjör­dæm­is­ins með 58 pró­sent lík­ur.

Líkur Ásmundar Frið­­riks­­son­­ar, þriðja manns á lista Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins og sitj­andi þing­­manns, eru komnar upp í 46 pró­sent og Guð­­mundur Auð­uns­­son, odd­viti Sós­í­a­lista­­flokks­ins, mælist með 44 pró­­sent lík­ur.

Auglýsing
Suðvesturkjördæmi
13 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 95%
    Willum Þór Þórsson
  • 55%
    Ágúst Bjarni Garðarsson
  • 9%
    Anna Karen Svövudóttir
  • 97%
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
  • 64%
    Sigmar Guðmundsson
  • 14%
    Elín Anna Gísladóttir
  • >99%
    Bjarni Benediktsson
  • >99%
    Jón Gunnarsson
  • 94%
    Bryndís Haraldsdóttir
  • 59%
    Óli Björn Kárason
  • 16%
    Arnar Þór Jónsson
  • 2%
    Sigþrúður Ármann
  • 51%
    Guðmundur Ingi Kristinsson
  • 10%
    Jónína Björk Óskarsdóttir
  • 50%
    María Pétursdóttir
  • 10%
    Þór Saari
  • 52%
    Karl Gauti Hjaltason
  • 11%
    Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
  • 85%
    Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
  • 36%
    Gísli Rafn Ólafsson
  • 5%
    Eva Sjöfn Helgadóttir
  • 93%
    Þórunn Sveinbjarnardóttir
  • 52%
    Guðmundur Andri Thorsson
  • 10%
    Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
  • 85%
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson
  • 36%
    Una Hildardóttir
  • 5%
    Ólafur Þór Gunnarsson

Líkt og áður er mikil hreyf­­ing er í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­­menn­asta kjör­­dæmi lands­ins sem skilar 13 þing­­mönn­­um. Átta þing­­menn mæl­­ast með 85 pró­­sent eða meiri líkur á að ná inn og sex aðrir mæl­­ast með 50 til 64 pró­­sent lík­­­ur. Það er því æsispenn­andi nótt framundan hjá þeim en ljóst að einn þeirra hið minnsta mun sitja eftir með sárt enn­ið. Ágúst Bjarni Garð­ars­son, annar maður á lista Fram­sókn­ar, bætir mestu við sig milli spáa og fer úr 37 í 55 pró­sent líkur á því að verða þing­mað­ur. Óli Björn Kára­son, fjórði maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rís sömu­leiðis skarpt úr 45 í 59 pró­sent lík­ur. 

Líkur Sig­mars Guð­munds­son­ar, ann­ars manns Við­reisn­ar, lækka um níu pró­sentu­stig milli þing­manna­spáa og standa í 64 pró­sent og líkur Guð­mundar Andra Thors­son­ar, sitj­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar, fara úr 61 í 51 pró­sent. Þá lækk­ar  María Pét­­ur­s­dótt­ir, odd­viti Sós­í­a­lista­­flokks­ins, úr 62 pró­­sent líkum í 50. Á svip­uðum slóðum og Guð­­mundur Ingi Krist­ins­­son, sitj­andi þing­­maður og odd­viti Flokks fólks­ins, sem hefur bætt við sig heilum 16 pró­­sent­u­­stigum á tveimur vikum og á helm­ings­líkur á þing­sæti. Karl Gauti Hjalta­­son, þing­­maður Mið­­flokks­ins, mælist með 52 pró­­sent lík­­­ur. 

Mest allra lækkar annar maður á lista Pírata í kjör­dæm­inu, Gísli Rafn Ólafs­son, sem átti 58 pró­sent líkur á að verða þing­maður í byrjun viku en sá draumur er nú orð­inn æði langsóttur með 38 pró­sent lík­ur.

Una Hild­­ar­dótt­ir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, mælist nú með 36 pró­­sent líkur á að ná inn.

Þróun fylgis framboða í kosningaspánni
Kosningaspáin er unnin í aðdraganda kosninga til Alþingis 2021.
B C D F M P S V Aðrir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar