Ásmundur Einar Daðason staðið sig best allra ráðherra – Bjarni Benediktsson langverst

Mun meiri óánægja er með störf ráðherra Sjálfstæðisflokksins en störf annarra ráðherra í ríkisstjórn samkvæmt nýrri könnun. Óánægjan er aðallega með Bjarna Benediktsson og Jón Gunnarsson. Mennta- og barnamálaráðherra er sá sem flestir eru ánægðir með.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur hefur starfað síðan í nóvember 2021.
Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur hefur starfað síðan í nóvember 2021.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, er sá ráð­herra sem flestir lands­menn telja að hafi staðið sig best á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu. Alls nefndu 13,8 pró­sent hann. Í öðru sæti er Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, en 9,7 pró­sent svar­enda telja að hún hafi staðið sig best. Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er í þriðja sæti með átta pró­sent. Það er meiri ánægja með hana á meðal almenn­ings en nokkurn annan ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Lang­flest­ir, alls 26,8 pró­sent aðspurðra, telja að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi staðið sig verst allra ráð­herra á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Ein­ungis einn annar ráð­herra fær þann dóm að hafa staðið sig verst hjá hlut­falli lands­manna sem nær tveggja stafa tölu. Það er Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra og flokks­bróðir Bjarna, en 16,3 pró­sent segja hann hafa staðið sig illa. Lilja Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er í þriðja sæti yfir þá sem hafa staðið sig verst að mati svar­enda, en 7,9 pró­sent nefndu hana. Katrín Jak­obs­dóttir er svo í fjórða sæti. Alls 7,3 pró­sent telja hana hafa staðið sig verst. 

Úr könnun Maskínu.

Athygl­is­vert er að óánægja með ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins er afger­andi meiri meðal svar­enda en ráð­herra hinna stjórn­ar­flokk­anna. Þannig nefndu 48,6 pró­sent svar­enda ráð­herra úr Sjálf­stæð­is­flokknum þegar þeir svör­uðu hvaða ráð­herra þeir teldu hafa staðið sig verst. 14,5 pró­sent nefndu ráð­herra úr Vinstri grænum og 12,1 pró­sent úr Fram­sókn. Þar skipta afger­andi óvin­sældir Bjarna og Jóns miklu máli. 

Mun­ur­inn milli flokka er allt annar þegar kemur að því að nefna hver hefur staðið sig best. Flest­ir, alls 27,4 pró­sent, nefndu ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins en skammt á hæla þeirra koma ráð­herrar Fram­sóknar með 25,1 pró­sent. Lest­ina reka ráð­herrar minnsta stjórn­ar­flokks­ins, Vinstri grænna, með 13,6 pró­sent. 

Auglýsing
Könnunin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. pan­el) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 967, en þeir eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóð­skrá. Könn­unin fór fram dag­ana 16. til 20. des­em­ber 2022.

Sam­fylk­ingin bætt miklu við sig

Þrjár nýlegar kann­an­ir, frá Gallup, Mask­ínu og Pró­sent, sýna að rík­is­stjórnin er tölu­vert frá því að mæl­ast með nægj­an­legt fylgi til að halda meiri­hluta á þingi. Allir stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn minnst, og í sumum til­vikum er hann nán­ast við kjör­fylgi, sem var 24,4 pró­sent. Vinstri græn og Fram­sókn hafa hins vegar tapað miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­in­u. 

Í könnun Gallup, sem birt var í vik­unni, mæld­ist fylgi Vinstri grænna til að mynda í fyrsta sinn undir sjö pró­sent­um. Flokk­ur­inn, sem nú mælist sá sjötti stærsti á þingi, og mögu­lega sá næst minnsti, hefur aldrei mælst með minna fylgi og eng­inn flokkur hefur tapað jafn miklu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og Vinstri græn. 

Auglýsing
Framsóknarflokkurinn fékk sömu­leiðis lægstu mæl­ingu sína á kjör­tíma­bil­inu, eða 12,1 pró­sent. Hann hefur því tapað 5,2 pró­sentu­stigum frá því í kosn­ing­unum haustið 2021.

Sam­an­lagt mæld­ist fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna þriggja 11,6 pró­sent hjá Gallup. 

Á sama tíma sýndu allar þrjár áður­nefndar kann­anir að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar væri komið yfir 20 pró­sent, en flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um. Í könnun Mask­ínu mæld­ist Sam­fylk­ingin stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Gallup mældi flokk­inn stærstan, með 23,6 pró­sent fylgi, sem var ein­ungis 0,2 pró­sentu­stigi undir Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Sam­kvæmt Gallup könn­un­inni hefur Sam­fylk­ingin því bætt við sig 13,7 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu, eða sem nemur tvö­földu fylgi Vinstri grænna. 

Ein­ungis einn annar flokkur á þingi hefur bætt við sig fylgi frá því að síð­ast var kosið sam­kvæmt mæl­ingum Gallup, Pírat­ar. Auk þeirra hefur Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn í síð­ustu kosn­ing­um, bætt lít­il­lega við sig en þó innan skekkju­marka. Hinir sex flokk­arnir sem mæl­ast með stuðn­ing hafa tapað fylgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent