Samfylkingin ekki stærri hjá Gallup í tólf ár en Vinstri græn hafa aldrei mælst minni

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn mælast nánast með sama fylgi í nýrri könnun Gallup og langstærstu flokkar landsins. Flokkur forsætisráðherra mælist hins vegar sjötti stærsti flokkurinn á þingi, með undir sjö prósent fylgi og einungis fjóra þingmenn.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Sam­fylk­ingin mælist með 23,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup sem er ein­ungis 0,2 pró­sentu­stigum undir fylgi Sjálf­stæð­is­flokks. Sá munur er langt innan skekkju­marka. Sam­fylk­ingin hefur ekki mælst með svo mikið fylgi í tólf ár, eða frá því í lok des­em­ber 2010. Þá sat flokk­ur­inn í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, var for­sæt­is­ráð­herra. 

Þetta er þriðja könn­unin á skömmum tíma sem sýnir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar yfir 20 pró­sentu­stig­um. Síð­ustu birtu kann­anir Mask­ínu og Pró­sents, sem birtar voru í lok nýlið­ins árs, gerðu það sömu­leið­is. Fylgi flokks­ins hefur farið hratt upp á við eftir að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í ágúst, en hún var kjörin for­maður flokks­ins í októ­ber. Alls mælist Sam­fylk­ingin nú með 13,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. 

Auglýsing
Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, hefur aldrei mælst minna í könn­unum Gallup, en þær ná aftur til 2004. Ein­ungis 6,8 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn en hann hefur aldrei áður farið undir sjö pró­sentin í könn­unum Gallup. Vinstri græn hafa tapað 5,8 pró­sentu­stigum frá haustinu 2021. Eng­inn flokkur á þingi hefur tapað jafn miklu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og Vinstri græn mæl­ast nú sjötti stærsti flokk­ur­inn á þing­i. 

Fram­sókn ekki minni á kjör­tíma­bil­inu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist nálægt kjör­fylgi, en 23,8 pró­sent segj­ast styðja hann. Það er 0,6 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi og flokk­ur­inn er áfram sem áður stærst­ur, þótt Sam­fylk­ingin andi hressi­lega niður háls­málið á hon­um. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá flokkur sem tapað hefur næst mestu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili, en fylgi hans hefur farið úr 17,3 í 12,1 pró­sent. Það er minnsta fylgi sem flokkur Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar hefur mælst með á yfir­stand­andi kjör­tíma­bil­i. 

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 11,6 pró­sentu­stigum sam­kvæmt Gallup. Það þýðir að Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig 2,1 pró­sentu­stigi meira af fylgi en flokk­arnir þrír sem sitja að völdum hafa tap­að. 

Líkt og áður sagði hefur fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar ekki mælst meira í tólf ár. Í þeirri könn­un, sem birt var í des­em­ber 2010, mæld­ust fjórir flokkar með fylgi hjá Gallup. Auk Sam­fylk­ing­ar­innar voru það núver­andi stjórn­ar­flokkar en þessi hópur flokkar er oft kall­aður fjór­flokk­ur­inn. 

Bjarni Benediktsson er eini stjórnarflokksformaðurinn sem getur unað ágætlega við það fylgi sem flokkur hans mælist með. Mynd. Eyþór Árnason

Í dag er staðan allt önn­ur, en alls níu flokkar mæl­ast með fylgi. Athygli vekur að Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru þeir með­limir fjór­flokks­ins sem mæl­ast með fylgi á svip­uðum slóðum nú og þeir voru með fyrir tólf árum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist þá með tíu pró­sentu­stigum meira en nú og Vinstri græn með 10,8 pró­sentu­stigum meira. 

Ein­ungis þrír flokkar hafa bætt við sig

Tveir aðrir flokkar utan Sam­fylk­ing­ar­innar hafa bætt við sig fylgi á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Píratar mæl­ast með 11,2 pró­sent og Sós­í­alista­flokk­ur­inn með 4,6 pró­sent. Sam­kvæmt útreikn­ingum RÚV, sem birti nið­ur­stöðu Gallup í kvöld­fréttum sín­um, dugir það fylgi þó ekki til að Sós­í­alistar nái inn manni ef kosið yrði í dag. 

Fylgi Við­reisnar mælist 6,9 pró­sent, eða 1,4 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi, og Flokkur fólks­ins mælist með 6,2 pró­sent, sem er 2,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í sept­em­ber 2021. Mið­flokkur Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar yrði svo minnsti flokk­ur­inn á þingi, en útreikn­ingar RÚV sýna að þau 4,6 pró­sent sem myndu kjósa flokk­inn gætu skilað einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni inn án þess þó að Mið­flokk­ur­inn næði yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf til að ná inn jöfn­un­ar­þing­mann­i. 

Einn ólík­legur mögu­leiki á tveggja flokka stjórn

Rík­is­stjórnin er fallin sam­kvæmt þess­ari könn­un, og þing­manna­fjöldi hennar færi úr 37 í 30. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi samt sem áður bæta við sig ein­um, og fá 17 þing­menn, í ljósi þess að Mið­flokk­ur­inn næði ekki jöfn­un­ar­þing­manni en Fram­sókn myndi tapa fjórum og fá níu. Vinstri græn myndu ein­ungis fá fjóra þing­menn ef kosið yrði í dag og þing­flokk­ur­inn myndi helm­ing­ast.

Auglýsing
Eina tveggja flokka stjórnin sem hægt væri að mynda við þessar aðstæður væri skipuð Sam­fylk­ingu og Sjálf­stæð­is­flokki, en það verður að telj­ast ósenni­leg nið­ur­staða miðað við yfir­lýs­ingar Kristrúnar Frosta­dótt­ur. Hún sagði meðal ann­ars í við­tali við Kjarn­ann í sept­em­ber að hún væri að binda hendur sínar stór­­kost­­lega gagn­vart öllum stærstu umbótum sem hún telji að þurfi að gera ef hún myndi fara í rík­­is­­stjórn­­­ar­­sam­­starf og fjár­­­mála­- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, sem stýrt hefur verið meira og minna af Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 2013, yrði haldið óbreyttu. „Mið-vinstri­st­jórn er aug­­ljós­­lega það sem við viljum sjá. Það er það sem þarf að ger­­ast. Það þarf að breyta um for­ystu og það þarf jafn­­að­­ar­­menn í hana. Mér finnst það lyk­il­at­rið­ið. Að senda þau skila­­boð að það séu flokkar sem eru ekki lengst til hægri sem geti stýrt efna­hags­­málum þannig að fólk geti upp­­lifað öryggi og að það sé ekki verið að fara að setja rík­­is­­sjóð á haus­inn. Að það sé rekin ábyrg efna­hags­­stefna sem styðji við vel­­ferð­­ar­­mál.“

Hægt væri að mynda þriggja flokka stjórn Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Flokks fólks­ins sem myndi hafa minnsta mögu­lega meiri­hluta. Tveir fyrr­nefndu flokk­arnir gætu líka sleppt Flokki fólks­ins og tekið Fram­sókn með sér, sem myndi auka meiri­hlut­ann um einn. Fjöl­margir mögu­leikar eru svo á myndum fjög­urra og jafn­vel fimm flokka stjórn­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent