42,1 prósent innflytjenda greiddu atkvæði í síðustu alþingiskosningum

Kosningaþátttaka innflytjenda í síðustu alþingiskosningum var 42,1 prósent, um helmingi minni en kosningaþátttaka í heildina, sem var 80,1 prósent. Enginn innflytjandi á sæti á þingi en 3,2 prósent varaþingmanna eru innflytjendur.

Kosningaþátttaka í síðustu alþingiskosningum var mest á meðal kosningabærra einstaklinga sem hafa engan erlendan bakgrunn, 83 prósent, en minnst meðal innflytjenda, 42,1 prósent.
Kosningaþátttaka í síðustu alþingiskosningum var mest á meðal kosningabærra einstaklinga sem hafa engan erlendan bakgrunn, 83 prósent, en minnst meðal innflytjenda, 42,1 prósent.
Auglýsing

Kosn­inga­þátt­taka í síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um, 25. sept­em­ber 2021, var mest á meðal kosn­inga­bærra ein­stak­linga sem hafa engan erlendan bak­grunn, 83 pró­sent, en minnst meðal inn­flytj­enda, 42,1 pró­sent.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum Hag­tíð­indum Hag­stof­unnar þar sem fjallað er um alþing­is­kosn­ing­arnar á síð­asta ári. Hag­stofa Íslands vinnur kosn­inga­skýrslur eftir hverjar kosn­ingar en þetta er í fyrsta sinn sem gerð er grein­ing á bak­grunni þeirra sem taka þátt í alþing­is­kosn­ing­um, auk fram­bjóð­enda.

Í alþing­is­kosn­ing­unum 25. sept­em­ber 2021 greiddu 203.898 atkvæði eða 80,1 pró­sent kjós­enda, sem er lægri kosn­inga­þátt­taka en árið 2017 þegar hún var 81,2 pró­sent. Kosn­inga­þátt­taka kvenna var ívið meira en karla, 81,5 pró­sent sam­an­borið við 78,7 pró­sent.

Auglýsing

Nokkur breyt­ing varð á fylgi stjórn­mála­sam­taka í alþing­is­kosn­ing­unum 2021 miðað við alþing­is­kosn­ingar 2017. Fram­sókn­ar­flokk­ur, Flokkur fólks­ins og Við­reisn bættu við fylgi sitt en fimm flokkar sem voru með þing­menn kjörna 2017 töp­uðu fylgi, þ.e. Mið­flokk­ur­inn, Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð, Sam­fylk­ing­in, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Pírat­ar. Einn flokk­ur, Sós­í­alista­flokkur Íslands, var nálægt því að fá þing­menn kjörna 2021 en þau hlutu 4,1% fylgi.

Rík­is­stjórnin hélt í síð­ustu kosn­ingum og bætti við sig tveimur þing­mönn­um, þrátt fyrir að sam­an­lagt heild­ar­fylgi hennar hafi ekki vaxið mik­ið. Önnur rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við í lok nóv­em­ber og hefur nú starfað í rúmt ár.

Kosn­inga­þátt­takan var breyti­leg eftir aldri og var hún minni á meðal yngri en eldri kjós­enda. Kosn­inga­þátt­takan var mest hjá körlum á aldr­inum 65-79 ára, þar sem hún var á bil­inu 90,2-90,6 pró­sent og konum á aldr­inum 60-74 ára þar sem hún var á bil­inu 90,1-90,8 pró­sent.

Kosn­inga­þátt­taka mest hjá þeim sem hafa engan erlendan bak­grunn

Sam­kvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unnar er inn­flytj­andi ein­stak­lingur sem fæddur er erlendis og á for­eldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlend­is.

Inn­flytj­end­ur á Íslandi voru 52.541 tals­ins, eða 14,6 pró­sent af heild­­ar­­mann­­fjölda, sam­­kvæmt mann­tali árs­ins 2021. Alls bjuggu 24.160 erlendir rík­­is­­borg­­arar í Reykja­vík um síð­ustu ára­­mót, eða rúm­­lega 44 pró­­sent allra erlendra rík­­is­­borg­­ara sem skráðir eru til heim­ilis á Íslandi. Þeir eru nú tæp­­lega 18 pró­­sent allra íbúa höf­uð­­borg­­ar­innar en þar búa 36 pró­­sent allra lands­­manna.

Ef bak­grunnur kjós­enda er skoð­aður sést að kosn­inga­þátt­takan var mest á meðal kosn­inga­bærra ein­stak­linga sem engan erlendan bak­grunn hafa, eða 83,0 pró­sent. Næst mesta þátt­taka var hjá þeim sem eru fæddir erlendis en báðir for­eldrar fædd­ust á Íslandi, 76,1 pró­sent.

Kosn­inga­þátt­takan var 69,6 pró­sent hjá ein­stak­lingum sem fæddir eru á Íslandi með annað for­eldri sem fædd­ist erlendis og 55,3 pró­sent hjá þeim sem fæddir eru erlend­is, með annað for­eldri erlent.

Minnst var kosn­inga­þátt­takan hjá þeim sem fædd­ust á Íslandi en með báða for­eldra sem fædd­ust erlend­is, 49,2 pró­sent og, sem fyrr segir var þátt­takan minnst meðal inn­flytj­enda eða 42,1 pró­sent.

Inn­flytj­endur 3,8 pró­sent fram­bjóð­enda

Eng­inn inn­flytj­andi á sæti á Alþingi en ef bak­grunnur fram­bjóð­enda og kjör­inna þing­manna í Alþing­is­kosn­ing­unum 2021 er skoð­aður sést að inn­flytj­endur voru 3,8 pró­sent fram­bjóð­enda.

Eng­inn inn­flytj­andi náði kjöri en 3,2 pró­sent vara­þing­manna eru inn­flytj­endur og hlut­fallið er 1,6 pró­sent ef litið er til alþing­is- og vara­þing­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent