Samfylkingin hefur næstum tvöfaldað fylgið og andar ofan í hálsmálið á Sjálfstæðisflokki

Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt nýrri könnun og fjölmargir möguleikar í kortunum. Þrír andstöðuflokkar hafa bætt við sig einum Framsóknarflokki það sem af er kjörtímabili en ríkisstjórnin tapað yfir tíu prósentustigum.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Sam­fylk­ingin mælist með 19,1 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Pró­sents sem birt er í Frétta­blað­inu í morgun. Fylgi flokks­ins hefur auk­ist um 5,6 pró­sent síðan í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í júní. Í milli­tíð­inni hefur Sam­fylk­ingin kosið sér nýjan for­mann, Kristrúnu Frosta­dótt­ur, en í Frétta­blað­inu í gær var greint frá því að sam­kvæmt könnun Pró­sents treystu flestir kjós­endur henni af leið­togum stjórn­mála­flokka. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist áfram stærsti flokkur lands­ins og er nú með 21,1 pró­sent fylgi, en hann hefur alla jafna mælst með minni stuðn­ing í könn­unum Pró­sents en hjá öðrum könn­un­ar­fyr­ir­tækj­um. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist yfir 20 pró­sent hjá fyr­ir­tæk­in­u. 

Þessir tveir flokkar skera sig úr í íslenskum stjórn­mál­um, miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­inn­ar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá 15 þing­menn sam­kvæmt henni en Sam­fylk­ingin 14. 

Fimm flokkar með yfir tíu pró­sent fylgi

Þrír aðrir flokkar ná tveggja stafa tölu í fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem styrkti stöðu sína veru­lega í þing­kosn­ing­unum fyrir rúmu ári og aftur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor, mælist með 14,6 pró­sent stuðn­ing sem myndi tryggja flokknum tíu þing­menn. Píratar myndu fá 11,8 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og átta þing­menn og Við­reisn 10,6 pró­sent og sjö þing­menn. 

Auglýsing
Fjórir flokkar mæl­ast svo með undir tíu pró­sent fylgi. Þar ber fyrst að nefna Vinstri græn, sem sitja í rík­is­stjórn og í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, en fylgi flokks­ins mælist nú ein­ungis átta pró­sent sem myndi skila fimm þing­mönn­um. Flokkur fólks­ins mælist með 6,4 pró­sent og fjóra þing­menn kjörna en hvorki Sós­í­alista­flokkur Íslands né Mið­flokkur næði manni inn. Báðir mæl­ast með 4,2 pró­sent fylg­i. 

Hafa bætt við sig einum Fram­sókn­ar­flokki á kjör­tíma­bil­inu

Sam­kvæmt könnun Pró­sents hafa þrír flokkar bætt við sig fylgi síðan í kosn­ing­unum í fyrra­haust, einn stendur nokkurn veg­inn í stað en fimm tapað fylg­i. 

Sam­fylk­ingin hefur bætt lang­mestu við sig, eða 9,2 pró­sentu­stig­um. Fylgi flokks­ins hefur nán­ast tvö­fald­ast. Þar á eftir koma Píratar sem hafa bætt við sig 3,2 pró­sentu­stigum af fylgi og Við­reisn sem hefur bætt við sig 2,3 pró­sentu­stig­um. Sam­an­lagt hafa þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar því aukið fylgi sitt um 14,7 pró­sent á fyrsta rúma árinu sem liðið er af kjör­tíma­bil­inu. Það er sam­an­lagt meira en allt fylgi þriðja stærsta flokks lands­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Vinstri græn hafa tapað mestu fylgi, eða 4,6 pró­sentu­stig­um. Alls hafa tæp­lega 37 pró­sent kjós­enda flokks­ins yfir­gefið hann á því rúma ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ing­um. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað 3,3 pró­sentu­stigum og Fram­sókn 2,7 pró­sentu­stig­um. Saman hafa flokk­arnir þrír sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur því misst 10,6 pró­sentu­stig af fylgi síðan í lok sept­em­ber í fyrra og njóta nú ein­ungis stuðn­ings 43,8 pró­sent lands­manna.

Rík­is­stjórnin kol­fallin

Rík­is­stjórnin er kol­fallin sam­kvæmt þess­ari könn­un. Flokk­arnir sem að henni standa myndu fá 30 þing­menn en eru með 38 í dag. Ýmis stjórn­ar­mynstur gætu verið í kort­unum miðað við þessa stöðu. Þeir fjórir flokkar sem í dag sitja í stjórn­ar­and­stöðu, og ná inn sam­kvæmt könnun Pró­sents eru Sam­fylk­ing, Pírat­ar, Við­reisn og Flokkur fólks­ins. Þeir mæl­ast sam­an­lagt með 33 þing­menn. Þessi staða myndi þó breyt­ast hratt ef annað hvort Mið­flokk­ur­inn eða Sós­í­alista­flokkur Íslands bættu lít­il­lega við sig og færu yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn. Það myndi senni­leg­ast þýða að þrír þing­menn hið minnsta myndu fær­ast yfir á þann flokk. 

Auglýsing
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram­sókn gætu losað sig við Vinstri græn og tekið Við­reisn inn í rík­is­stjórn sem væri með minnsta mögu­lega meiri­hluta, 32 þing­menn gegn 31. Afar ósenni­legt verður að telj­ast að Sam­fylk­ing eða Píratar myndu ganga inn í slíka rík­is­stjórn sem þriðji flokkur og því yrði það eini raun­hæfi mögu­leik­inn á þriggja flokka rík­is­stjórn með aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks. 

Ef Sam­fylk­ingin ætl­aði að mynda stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks þá væri mögu­leiki á því að mynda þriggja flokka stjórn, miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­inn­ar, með Fram­sókn og Píröt­um. Hún myndi einnig hafa minnsta mögu­lega meiri­hluta. 

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur endurnýjaði samstarf sitt í nóvember 2021. Ómögulegt væri að mynda stjórn þeirra flokka sem að henni standa í dag, miðað við niðurstöðu könnunarinnar. Mynd: Bára Huld Beck

Nokkrir mögu­leikar væru hins vegar á fjög­urra flokka stjórn­um. Í slíkum væri til dæmis hægt að skilja bæði Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk eftir í stjórn­ar­and­stöðu en saman eru Sam­fylk­ing, Pírat­ar, Við­reisn og Vinstri græn með 34 þing­menn.

Flestir treysta Kristrúnu

Frétta­blaðið birti í gær könnun Pró­sents sem sýndi traust til for­manna stjórn­mála­flokka lands­ins. Þar kom fram að Kristrún Frosta­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, nyti mest trausts slíkra en 25,4 pró­sent aðspurðra sögð­ust treysta henni best. 

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, kom þar næst en alls 17,5 pró­sent sögð­ust treysta henni. Hún hefur vana­lega mælst sá stjórn­mála­maður sem flestir Íslend­ingar treysta og vin­sældir hennar náðu lengi langt út fyrir flokk­inn sem hún stýr­ir. Þær hafa þó verið á hröðu und­an­haldi, sér­stak­lega á þessu kjör­tíma­bil­i. 

Þá sögð­ust 15,4 pró­­sent treysta Bjarna Bene­dikts­­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, best allra for­­manna flokk­anna. 11,3 pró­­sent treysta Sig­­urði Inga Jóhanns­­syni, for­­manni Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, mest og 9,7 pró­­sent treysta Þor­­gerði Katrínu Gunn­­ar­s­dótt­­ur, for­­manni Við­reisn­­­ar, best.

Katrín segir við Frétta­blaðið í dag að kann­anir hreyfi ekki sér­stak­lega við henni. „Eins og allir vita, sem vita eitt­hvað um póli­tík, er það hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að halda saman rík­is­stjórn. Það er flókið verk­efn­i.“

Kristrún segir á sama stað að mæl­ingin sé ánægju­leg en að hún sé með­vituð um að veg­ferð hennar sé rétt að hefjast, og að hún verði löng. „Ég er þakk­lát fyrir að hafa náð eyrum fólks en ég held að það verði að setja þessa mæl­ingu í sam­hengi við atburði síð­ustu vikna. Traust til stjórn­mála og Alþingis er mjög vand­með­far­ið.“ Könn­unin var net­könnun fram­kvæmd 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent